Back to search

Bifröst University

Af hverju var evrunni hafnað af nokkrum ríkjum Evrópusambandsins?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er markmiðið að gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem fengið hafa mest vægi í umfjöllun um málefni upptöku evru í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð. Leitað er að raunverulegri ástæðu þess að fyrrgreind Evrópusambandsríki kusu að hafna aðild að myntbandalaginu. Það er skylda fyrir þær þjóðir sem hafa fengið inngöngu í Evrópusambandið að stefna að því að taka nauðsynleg skref til að undirbúa það sem þarf til inngöngu í Evrópska efnahags- og myntbandalagið og þar með taka upp evru. Til að skoða þau sjónarmið sem hæst hefur borið á um þetta málefni var ráðist í leit að greinum sem fjallað hafa um málefnið í hverju þessara landa og var textinn innihaldsgreindur. Alls komu 33 mismunandi sjónarmið fram í greiningunni, þó sum þeirra væru óumflýjanlega tengd að einhverju leyti. Tíðnihæsta sjónarmiðið er það að ekki sé vilji fyrir því að afsala viðkomandi ríki sjálfstæði í peningamálum, en við inngöngu í Efnahags- og myntbandalagið færist stjórn peningamála yfir til Evrópska seðlabankans, enda er fyrri gjaldmiðill lagður niður. Ástæður þess að fyrrgreind lönd hafa komist hjá skyldu sinni til upptöku evru eru undanþágur sem fengnar voru í gegn með samningagerð, neikvæð úrslit þjóðaratkvæðagreiðslna og jafnframt tæknilegur galli á útfærslu reglugerðarinnar. Tilgangur rannsóknarinnar er að koma með fræðilegt sjónarmið í umræðuna á Íslandi um hvaða gjaldmiðill henti þjóðinni best.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Eggert Halldóruson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Ólafur Ísleifsson 1955-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23715

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Eggert Halldóruson 1982-. Af hverju var evrunni hafnað af nokkrum ríkjum Evrópusambandsins?. 2016. https://hdl.handle.net/1946/23715