Back to search

Bifröst University

Stjórnvaldssektir : beiting stjórnvaldssekta skv. 37. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni verður gerð grein fyrir beitingu stjórnvaldssekta í íslenskum samkeppnisrétti. Það verður byrjað að fara yfir kosti og galla þess að beita þessum sektum ásamt þeim málsmeðferðarreglum sem stjórnvald þarf að fara eftir. Því næst verður fjallað með almennum hætti um beitingu stjórnvaldssekta. Jafnframt verður farið stuttlega yfir sögu sektarákvæða samkeppnislaga og hvernig þróunin hefur verið í réttarframkvæmd. Síðan verður farið yfir þær valdheimildir sem Samkeppniseftirlitið getur gripið til við rannsókn mála og til hvaða atriða það þarf að líta til í störfum sínum. Eftir það verður farið yfir stjórnvaldssektir í samkeppnisrétti og litið til hvaða tilgagni þær eiga að þjóna og hvernig fjárhæð þeirra er ákvörðuð. Að því búnu verða niðurstöður kynntar en þar kom fram að til að koma í veg fyrir að fyrirtæki sjái hag sinn í að brjóta á bannreglum samkeppnisréttar þá þurfa að vera varnaðaráhrif. Til að stemma stigu við samkeppnislagabrot þá hefur hingað til verið beitt stjórnvaldssektum. Sektir eru taldar henta betur þar sem þær hafa varnaðaráhrif og í því sambandi er fjárhæð þeirra mikilvæg.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðlaugur Siggi Hannesson 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Valgerður B. Eggertsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23723

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðlaugur Siggi Hannesson 1988-. Stjórnvaldssektir : beiting stjórnvaldssekta skv. 37. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. 2016. https://hdl.handle.net/1946/23723