Back to search

Bifröst University

Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM?

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin snýr að innleiðingaferli stjórnun viðskiptatengsla (e. Custumer Relationship Management) (CRM). CRM snýr að því að afla upplýsinga um viðskiptavini fyrirtækja, greina þær upplýsingar til að geta betur greint markhóp fyrirtækisins og nálgast þá með virðisaukningu beggja aðila að leiðarljósi til lengri tíma. Fyrirtæki eru því betur upplýst um sína viðskiptavini, geta þá boðið upp á persónulegri og gæðameiri þjónustu, en að sama skapi aukið sölu sína og um leið bætt starfsánægju innan fyrirtækisins. Innleiðing á CRM tengist breytingastjórnun á margan hátt þar sem verið er að breyta starfsháttum og starfsvenjum fyrirtækja. Þegar breytingar eiga sér stað innan fyrirtækja er mikilvægt að sem flestir hagsmunaaðilar taki virkan þátt í breytingaferlinu og sér í lagi lykilstarfsfólk þar sem að það þarf lítið til að ferlið fari forgörðum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er sú að við innleiðingu á CRM getur ágóði fyrirtækja aukist töluvert eins og aukin sala, meiri viðskiptatryggð viðskiptamanna og meiri ánægja starfsfólks. Þá kom í ljós að ferlið er afar viðkvæmt og flókið. Fyrirtæki þurfa að velja réttu upplýsingakerfin sem henta þeim, bæði sérhæfð CRM kerfi og önnur kerfi sem styðja við CRM kerfið. Þá skiptir máli að innleiðingin sé rétt kynnt fyrir starfsfólki og að þjálfun fylgi innleiðingunni. Svo þarf að gæta þess að samskipti á milli deilda séu skilvirk, til að innleiðingin gangi sem best fyrir sig. Þessir þættir skipta sköpun til að hámarka árangur innleiðingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Erna Hafsteinsdóttir 1979-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23730

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Erna Hafsteinsdóttir 1979-. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM?. 2016. https://hdl.handle.net/1946/23730