Bifröst University
Þróun stjórnunar og stjórnunarstíla : hvaða áhrif hefur fjölgun kvenna í stjórnunarstörfum haft á þróun stjórnunar og stjórnunarstíla?
Abstract
dc:description.abstractStjórnun og stjórnunarstílar hafa breyst mikið á seinustu árum á Íslandi og þá sérstaklega eftir að lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja voru sett. Konur eru að koma sterkar inn sem stjórnendur stórra og áberandi fyrirtækja og má velta því fyrir sér hvort stjórnunarstílar breytist við þessa fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum, eða jafnvel hvort að konum sé að fjölga í stjórnunarstöðum af því að stjórnunarstílar eru að breytast. Í rannsókninni verður farið yfir helstu stjórnunarstíla og því velt upp hvort hægt sé að binda þá við annað kynið frekar en hitt og skoða hvort „kvenlegir“ stjórnunarstílar séu að verða vinsælli á sama tíma og konum er að fjölga í stjórnunarstöðum. Viðtöl voru tekin við æðstu stjórnendur stórra og/eða áberandi fyrirtækja á Íslandi til að ná fram eigindlegum niðurstöðum við ýmsum spurningum sem vöknuðu við rannsókn á þessu viðfangsefni. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að grunnskilgreining á stjórnun hefur lítið breyst en stjórnunarstílar eru orðnir lýðræðislegri og meira er lagt upp úr samvinnu og að hlusta á starfsmenn. Hvað varðar fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum telja viðmælendur þá þróun vera jákvæða og aukin fjölbreytni sé alltaf af hinu góða. Einnig virðist aukin þátttaka kvenna í stjórnum fyrirtækja hafa jákvæð áhrif á afkomu þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lilja Sigurðardóttir 1986-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Jón Snorri Snorrason 1955-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/23733