Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar var að skoða starfsmannastjórnun um borð í íslenskum togurum. Samkvæmt Hagstofunni eru 49 togarar vítt og breitt um landið en mannauður og stjórnun um borð í þeim hefur lítið verið rannsökuð. Beitt var eigindlegri viðtalsrannsókn. Tekin voru níu viðtöl við starfandi skipstjóra og þau greind samkvæmt grundaðri kenningu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að starfsmannastjórnun um borð í íslenskum togurum er á sama þroskastigi og starfsmannastjórnun á Íslandi samkvæmt CRANET rannsókninni frá 2012. Áhersla er fyrst og fremst á daglega afgreiðslu mála en ekki unnið mjög stefnumiðað, ráðningar unnar fremur óformlega, starfsmannahandbækur eru til staðar og móttökuferli er nokkuð þróað. Námskeið eru skipulögð með þarfir skipulagsheildarinnar í huga, starfsmannastefna er til staðar en frammistöðumat ekki. Þegar horft er til stjórnunarstíla þátttakanda er hann felandi. Stéttleysi er algert en hraði einkennir vinnu og ákvarðanatökur. Þá eru samskiptin í föstum skorðum og verklag ákveðið. Við mat á niðurstöðum ber að hafa í huga að úrtak rannsóknarinnar er mjög lítið og því erfitt að heimfæra það yfir á allt þýðið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Halldórsdóttir 1969-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Hrefna Sigríður Briem 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/23735