Bifröst University
Ólík viðhorf sveitarstjórnarfulltrúa til setu í sveitarstjórn eftir kyni
Abstract
dc:description.abstractKomið hefur fram í umræðu um jafnrétti að auka þurfi hlutfall kvenna í stjórnum og stjórnmálum og það á ekki síður við í sveitarstjórnum. Tilgangur þessa verkefnis var rannsaka hvort fram kæmi munur á viðhorfi kynjanna til setu í sveitarstjórnum. Lagt var upp með rannsóknarspurninguna: Er munur á viðhorfi sveitarstjórnarfulltrúa til setu í sveitarstjórn eftir kyni? Ef svo er, hver er hann og hvers vegna? Leitast var við að kanna hug, viðhorf og ástæðu þess að fólk gaf kost á sér til setu í sveitarstjórnum, svo og viðhorfi til starfsins almennt. Til þess að fá svör við þessum vangaveltum var spurningakönnun send á núverandi sveitarstjórnarfulltrúa. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að greinilegur munur var á viðhorfi kynjanna. Töluvert fleiri konur en karlar voru sammála eftirfarandi fullyrðingum: • „Mér finnst skipta máli að kynin komi nokkuð jafnt að ákvarðanatöku í sveitarfélaginu“ • „Mér finnst skipta máli að hlufall kynjanna í sveitarstjórn sé nokkuð jafnt“ Túlka má niðurstöðurnar sem svo að þessi atriði skipti konur mun meira máli en karla vegna þess hve mikil barátta er að baki þeim árangri sem þó hefur náðst. Baráttan snerist í upphafi um aukna hlutdeild kvenna í stjórnmálum en hefur nú þróast í það að vilja jafna hlutdeild karla og kvenna í stjórnmálum og þar af leiðandi aukið jafnrétti í mikilvægri ákvarðanatöku sem leiðir til hagsbóta fyrir samfélagið allt. Lykilorð: Sveitarstjórnarfulltrúar – Viðhorf – Spurningakönnun – Jafnrétti – Karlar – Konur
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Bettý Alfreðsdóttir 1969-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Auður H. Ingólfsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/23761