Bifröst University
Drifkraftar og hindranir í opinberri stjórnun : samanburður á íslenskum og dönskum stjórnendum
Abstract
dc:description.abstractNorræn forysta einkennist af áherslu á samfélagsleg gildi, fjölbreytni og velferð borgaranna. Þessi stjórnunarstíll nýtur mikilla vinsælda í heiminum um þessar mundir vegna þess að hann skapar árangur sem þykir eftirsóknarverður. Megintilgangur þessa verkefnis felst í að skoða hvernig opinberir stjórnendur á Íslandi upplifa starfsumhverfi sitt, bera það saman við starfsumhverfi danskra stjórnenda og skoða í samhengi við norræn gildi. Gerð var lýsandi samanburðarrannsókn með megindlegum aðferðum. Send var vefkönnun til 1.786 opinberra stjórnenda og var svarhlutfall 31%. Helstu niðurstöður eru að íslenskir stjórnendur virðast vera ánægðir með starfsumhverfi sitt. Samstarf og tengslanet er gott á vinnustaðnum og stjórnendur telja sanngjarnar kröfur vera gerðar til þeirra. Hins vegar kemur í ljós að stjórnendur hafa lítil áhrif á árangur og betur mætti nýta skjalfestar upplýsingar. Samanburður við danska stjórnendur leiðir í ljós að upplifun stjórnenda er sambærileg þegar á heildina er litið þó að hvort land hafi sína sérstöðu. Þannig telja danskir stjórnendur skrifræði vera mikið en íslenskir stjórnendur virðast hafa lítil áhrif á starfsfólk til að auka skilvirkni. Báðir hópar telja sig hafa lítil áhrif á löggjöf og pólitískt bakland en eru ánægðir með fjárhagsleg og skipulagsleg skilyrði, telja tengslanet og samstarf gott en vilja bæta færni sína í gæðastjórnun. Samkvæmt niðurstöðunum einkennist opinber stjórnun á Íslandi af trausti, skýrum verkferlum, stuttum boðleiðum og litlu skrifræði en tækifæri felast í að hafa meiri áhrif og auka árangur í starfseminni. Verkefni og viðhorf íslenskra stjórnenda falla vel að norrænum viðmiðum þar sem opin samskipti, gagnrýni í hugsun og einstaklingshyggja í bland við umhyggju eru einkenni stjórnunarstílsins. Lykilorð: Norræn forysta, opinberir stjórnendur, velferðarstjórnun, leiðtogafærni, árangur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bergþóra Hlín Arnórsdóttir 1967-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/25129