Back to search

Bifröst University

SkjárEinn á samkeppnismarkaði : hver er markaðsstaða SkjásEins og getur SkjárEinn náð að byggja upp samkeppnisforskot á markaðnum?

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Miklar breytingar hafa átt sér stað í samkeppnisumhverfi íslenskra sjónvarpsstöðva á undanförnum árum í kjölfar tækniþróunar. Ný tækifæri hafa skapast og sjónvarpsstöðvar hafa þurft að hafa sig allar við í að fylgja samkeppninni og grípa tækifærin sem myndast hafa með tæknibreytingum. SkjárEinn hefur verið hluti af samkeppnisumhverfi sjónvarpsstöðva hérlendis síðan 1999 og hefur hann þurft að leggja sig fram við að skapa sér sess á markaðnum. Staða hans á markaði hefur verið nokkuð breytileg í gegnum árin og er áhugavert að skoða hver staðan er í dag. Markmið greiningarinnar var að skoða þróun SkjásEins í áhorfshlutdeild samanborið við helstu samkeppnisaðila og varpa ljósi á stöðu hans á markaðnum í dag. Einnig var ætlað að skoða hvort SkjárEinn geti átt möguleika á að ná samkeppnisforskoti á sjónvarpsmarkaðnum. Niðurstöður voru unnar með greiningu á annars stigs gögnum þar sem tölfræðilegum gögnum var safnað og unnið úr þeim með helstu markaðsaðgerðir og breytingar á virðistilboði SkjásEins til hliðsjónar. Við úrvinnslu gagnanna kom í ljós að sveiflur hafa verið á markaðsstöðu SkjásEins frá því rafrænar mælingar á sjónvarpsáhorfi hófust 2008. Rannsóknarspurningarnar hljóma svo: „Hver er markaðsstaða SkjásEins?” og „Getur SkjárEinn náð að byggja upp samkeppnisforskot á markaðnum?” Niðurstöður greiningarinnar leiddu í ljós að markaðsstaða SkjásEins hefur verið á uppleið á síðastliðnum tveimur árum og er orðin nokkuð sterk. Möguleiki SkjásEins á samkeppnisforskoti virðist þó ekki í sjónmáli þar sem Rúv hefur afgerandi forystu. Hins vegar getur SkjárEinn hugsanlega náð samkeppnisforskoti á markaði einkarekinna sjónvarpsstöðva.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björk Júlíana Jóelsdóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/25131

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björk Júlíana Jóelsdóttir 1982-. SkjárEinn á samkeppnismarkaði : hver er markaðsstaða SkjásEins og getur SkjárEinn náð að byggja upp samkeppnisforskot á markaðnum?. 2016. https://hdl.handle.net/1946/25131