Back to search

Bifröst University

"Það virðast allir vita hvað þeir vilja" : reynsla stjórnenda íslenskra hönnunarfyrirtækja af samskiptum og menningu vegna markaðssetningar í Japan, Kína og Hong Kong.

Abstract

dc:description.abstract

Hönnun er ung atvinnugrein á Íslandi en hefur farið vaxandi á árunum eftir efnahagshrunið 2008. Hér var sérstaklega horft til hönnunar á lífsnautnavörum en mörg hönnunarfyrirtæki hafa fært út kvíarnar frá innanlandsmarkaði, meðal annars til Austur-Asíu. Ólík menning fylgir fjarlægum mörkuðum og þar af leiðandi menningarmismunur en þetta eru þættir sem skipta máli í alþjóðlegum viðskiptum. Aðalmarkmið þessarar rannsóknar var að fá skilning og innsýn inn í reynslu stjórnenda íslenskra hönnunarfyrirtækja af samskiptum við dreifingaraðila, umboðsmenn og verslunareigendur vegna markaðssetningar í Austur-Asíu og hvernig þeir tókust á við menningarlegar áskoranir. Tekin voru viðtöl við stjórnendur íslenskra hönnunarfyrirtækja sem selja lífsnautnavörur í Japan, Kína og Hong Kong. Notast var við fyrirbærafræði. Viðmælendur voru þrír karlmenn og fimm konur sem eru stjórnendur hjá íslenskum hönnunarfyrirtækjum. Helstu niðurstöður voru að stjórnendurnir upplifðu að viðskiptavinir þeirra í Japan, Kína og Hong Kong kæmu hreint fram, væru pottþéttir og vissu hvað þeir vildu, að eftirspurn væri eftir evrópskum lúxus- og gæðavörum og að Austur-Asíubúar færu sínar eigin leiðir í klæðaburði. Sýnileiki var jafnframt talinn mikilvægur og kom fram að samskiptamiðlar njóti vinsælda á þessum markaði. Stjórnendurnir sögðust takast á við áskoranir með umburðarlyndi og sveigjanleika til að koma á góðum samskiptum og halda í viðskiptavinina. Upplýsingaöflun var lykilþáttur til að takast á við þær áskoranir sem fylgja stórum og fjarlægum markaði. Þekking á markaðnum var einnig leið til að takast á við áskoranir og komu samstarfsaðilar á svæðinu þar sterkt inn. Að síðustu kom fram að auðveldara væri að eiga viðskipti við fjarlæg lönd en áður og að viðskipti væru ekki svo frábrugðin á þessum markaði en annars staðar í heiminum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Jónsdóttir 1975-
Advisor dc:description.advisor
  • Erla Sólveig Kristjánsdóttir 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/25163

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Jónsdóttir 1975-. "Það virðast allir vita hvað þeir vilja" : reynsla stjórnenda íslenskra hönnunarfyrirtækja af samskiptum og menningu vegna markaðssetningar í Japan, Kína og Hong Kong.. 2016. https://hdl.handle.net/1946/25163