Back to search

Bifröst University

Lundabúðaplágan

Abstract

dc:description.abstract

Mikil umræða hefur verið í samfélaginu um að Íslendingar sækist ekki lengur í miðborg Reykjavíkur til þess að versla sökum einsleitrar verslunar og þjónustu. Svokallaðar „lundabúðir“, eins og þær eru stundum nefndar, hafi breytt ásýnd miðborgarinnar og gert hana óspennandi fyrir almenning. Vörur skapandi greina eins og list og hönnunarvörur hafa ótvírætt menningarlegt, efnahagslegt og samfélagslegt gildi. Því er vert að skoða þau áhrif sem brotthvarf slíkra verslana hefur á miðborgina og að hvaða leyti þróun verslunar er bundin við framboð og eftirspurn. Markmið þessarar ritgerðar er að rannsaka að hvaða marki lundabúðir hafa tekið yfir helsta verslunarsvæði miðborgarinnar og rutt verslunum, sem selja afurðir skapandi greina, út af svæðinu. Frumgagna var aflað með eigindlegri og megindlegri rannsókn. Verslunareigendur og erlendir ferðamenn voru spurðir álits í þeim tilgangi að fá sem réttasta mynd af raunstöðu verslunar í miðborginni. Helstu niðurstöður gefa til kynna að lundaplágan sé raunveruleg: lundabúðum hefur fjölgað á meðan verslanir sem selja íslenskt handverk, list og hönnun, eiga í vök að verjast. Ástæðurnar eru flóknar. Spila markaðsöflin, framboð og eftirspurn, þar lykilhlutverk. Þau hafa áhrif á leiguverð sem og þróun þess hvernig verslanir koma inn á svæðið. Skipulagsmál og lokanir gatna í miðborginni hafa sín áhrif. Lokanir gatna takmarka ákveðinn hóp frá svæðinu. Borgarskipulag segir aðeins til um hvernig skipting milli verslunar, þjónustu og annarar starfsemi skal háttað en ekki hvernig tegund af smásölu skal vera á svæðinu. Aukið framboð og eftirspurn eftir ódýrri, innfluttri, fjöldaframleiddri minja- og gjafavöru hefur því eitt og sér ekki áhrif á ryðja í burtu list- og hönnunarvöru úr miðborg Reykjavíkur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafsteinn Eyland 1983-
Advisor dc:description.advisor
  • Magnús Sveinn Helgason 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26184

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafsteinn Eyland 1983-. Lundabúðaplágan. 2016. https://hdl.handle.net/1946/26184