Back to search

Bifröst University

Vöruframsetning og kaupákvörðun : áhrifamáttur á kaupákvörðun neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Með þessari markaðsrannsókn er verið að skoða hvaða og hversu mikil áhrif sölukynning hefur á vörusölu innan dagvöruverslana á Íslandi. Teknir verða fyrir tveir þættir sölukynninga en það er afsláttur af vöru sem er tilgreindur við verðmerkingu og mismunandi framstilling vöru innan verslunar. Áhrif hvers þáttar verður mældur ásamt blöndu beggja. Rannsóknarspurning var: „Áhrifamáttur á kaupákvörðun neytenda“. Rannsóknin náði yfir fimm vikna tímabil og var framkvæmd í einni af verslunum Hagkaupa. Varan sem notuð var við rannsóknina var sælgætið Caramel frá Tunnocks sem var selt í 37 gramma einingum. Niðurstöður sýndu að umtalsverð aukning varð á sölu vörunnar þegar afsláttur var veittur af henni í hillu. Þá jókst salan margfalt þegar vörunni var stillt fram á gólfi verslunarinnar og mest var salan þegar framstillingu og afslætti var beitt saman. Niðurstöðurnar styðja við aðrar rannsóknir sem hafa verið framkvæmdar á viðfangsefninu og sýna um leið hversu mikillar aukningar megi í raun vænta á íslenskum dagvörumarkaði. Þannig eru niðurstöðurnar gagnlegar öllum þeim sem hafa hag af vörusölu innan dagvöruverslana á Íslandi eins og markaðs- og vörustjórum, framleiðendum, endursöluaðilum og verslunareigendum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björn Kristjánsson 1983-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26186

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björn Kristjánsson 1983-. Vöruframsetning og kaupákvörðun : áhrifamáttur á kaupákvörðun neytenda. 2016. https://hdl.handle.net/1946/26186