Bifröst University
"...þú getur ekki verið besti vinur allra, maður þarf að taka erfðar ákvarðanir" : vinnuumhverfi á Landspítala frá sjónarhóli hjúkrunardeildarstjóra.
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf hjúkrunardeildarstjóra sem starfa á Landspítala til vinnuumhverfisins á spítalanum. Markmiðið með því var öðlast ákveðna innsýn í vinnnumhverfið frá þeirra sjónarhóli sem er gagnlegt innlegg í gagnrýna umræðu um stjórnun og það umbótastarf sem framundan er á spítalanum. Nálgunin byggði á eigindlegri aðferðafræði og var stuðst við aðferð grundaðrar kenningar. Þátttakendur voru sex hjúkrunardeildarstjórar, þeir voru valdir með fræðilegu úrtaki og tók hver þeirra þátt í einu hálfstöðluðu viðtali. Megin niðurstöðurnar eru þær að vinnuumhverfið á Landspítalanum hefur þróast á jákvæðan máta ýmsan hátt síðast liðin 15-20 ár. Niðurskurður til spítalans var megin hvatinn að þessum breytingum og átti þátt í að leggja grunn verðmætamati dagsins í dag með áherslu á ábyrgð, samstöðu og árangur. Síðast liðin ár hefur jafnframt verið lögð áhersla á að skapa heilbrigt vinnuumhverfi og gegna hjúkrunardeildarstjórar hlutverki leiðtoga innan þessa umhverfis á spítalanum. Leiðtogahættirnir sem þeir styðjast við eiga það sameiginlegt að rækta jákvæð tilfinningatengsl við starfsfólkið. Þessi tengsl voru fyrst og fremst ræktuð með stuðningi. Í ljós kom að hugtakið stuðningur er margræðið hugtak og hjúkrunardeildarstjórum tamt að veita stuðning með margs konar hætti. Ákveðinn angi innan vinnuumhverfsins („smákóngaveldið“) hefur farið varhluta af framtíðarsýn um heilbrigt vinnuumhverfi, rætt er um orsakir þess og afleiðingar og hvað sé til ráða. Lykilhugtök: Hjúkrunardeildarstjórar, millistjórnendur, leiðatogahættir, stjórnendur heilbrigt vinnuumhverfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Linda Björnsdóttir 1968-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Gylfi Dalmann Aðalsteinsson 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/26187