Back to search

Bifröst University

Icetransport : stefnumótun 2017

Abstract

dc:description.abstract

Stefnumótun þessi var gerð fyrir Icetransport. Icetransport er flutningsmiðlun sem veitir alhliða flutningslausnir fyrir viðskiptavini sína hvort sem um ræðir hraðsendingar, flug- eða sjófrakt. Farið er almennt yfir stefnumótun ásamt því að greining á innri- og ytri þáttum fyrirtækisins er gerð. Greining á helstu samkeppnisaðilum er gerð út frá árskýrslum og skoðaðar eru lykil kennitölur þar. Grunnur að stefnumótun er lagður og að lokum eru settar fram fimm tillögur að mögulegum stefnum fyrir Icetransport. Niðurstöður á fjárhagslegum þáttum sýna að Icetransport sé fjárhagslega vel statt en arðsemi eigin fjár og heildareigna fer minnkandi milli ára. Helsti hugbúnaður fyrirtækisins, Navision, er fremur ábótavant og þarfnast mikillar þróunar. Sölu- og markaðsstefna, starfsmannastefna og þjónustustefna eru helstu þættir sem höfundur telur þurfi að mynda. Segja má að Icetransport sé að upplifa mjög spennandi tímamót núna þar sem FedEx hefur keypt TNT og stendur sameiningarferli yfir. Ef Icetransport fær TNT umboðið einnig til sín opnast miklar tengileiðir og möguleikar á tekjuaukningu. Það er mat höfunda að styrkja þurfi innvið fyrirtækisins með stefnumótun líkt og lagt er upp í verkefni þessu og er ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtækið auki rekstrartekjur og hagnað sinn ef stefnumótun tekst vel til.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Logi Jóhannesson 1985-
Advisor dc:description.advisor
  • Húni Jóhannesson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26790

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Logi Jóhannesson 1985-. Icetransport : stefnumótun 2017. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26790