Back to search

Bifröst University

Hver eru þjónustueinkenni fjarskiptafélaga á Íslandi? : hvernig er best að mæla gæði þjónustu þeirra og hvaða gæðakerfi gæti hentað þeim?

Abstract

dc:description.abstract

Samhliða auknum tækniframförum undanfarna áratugi hefur þáttur þjónustu aukist jafnt og þétt og snertir í dag flesta þætti samfélagsins. Meiri breidd hefur skapast í atvinnustarfsemi í samfélaginu í kjölfar þess og mikilvægi greinarinnar aukist. Í því sambandi má nefna fjarskiptaþjónustu en hún er búin að vera í örum vexti síðasta áratug og er orðin mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks í formi samskiptaleiðar þeirra við umhverfi sitt. Fjarskiptafyrirtæki byggja afkomu sína mikið til á fjarskiptaþjónustu og því er mikilvægt fyrir þau að tryggja gæði fjarskiptaþjónustu á sem bestan hátt svo síður myndist bil á milli væntinga viðskiptavina og upplifunar þeirra. Mikilvægt er að réttar aðferðir séu notaðar til þess að mæla gæði þjónustu svo upplýsingar liggi fyrir um gæði þjónustu sem veitt er. Niðurstaða þessa verkefnis er að mælitækin „SERVQUAL“ og „Þjónustuganga“ henti best til að mæla gæði fjarskiptaþjónustu og gæðakerfið „Poka Yoke“ henti fjarskiptafyritækjum vel til þess að búa til ramma utan um þjónustusköpun hjá fjarskiptafyrirtækjum. Einnig að helstu einkenni fjarskiptaþjónustu séu óáþreifanleiki, að hún sé sköpuð að mestu hjá viðskiptavini og að þátttakendur í sköpun hennar séu viðskiptavinir og þjónustukerfi viðkomandi fjarskiptafyrirtækis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svavar Kári Svavarsson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26792

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svavar Kári Svavarsson 1982-. Hver eru þjónustueinkenni fjarskiptafélaga á Íslandi? : hvernig er best að mæla gæði þjónustu þeirra og hvaða gæðakerfi gæti hentað þeim?. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26792