Back to search

Bifröst University

Alþjóðavæðing Greenqloud : ástæður og ákjósanlegar leiðir

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarna áratugi hefur vöxtur alþjóðaviðskipta verið mikill. Markaðir hafa runnið saman með tilstuðlan hinna ýmsu viðskiptabandalaga og eru ekki lengur sjálfstæðar einingar. Í alþjóðavæðingu nútímans líta margir þannig á að heimurinn sé eitt stórt markaðssvæði og ef fyrirtæki hyggjast ná árangri þá verða þau að vera reiðubúin að há keppni á alþjóðamarkaði og er það algjörlega óháð stærð þeirra. Það hafa verið gerðar margar rannsóknir á því ferli sem fyrirtæki þurfa að fara í gegnum þegar þau alþjóðavæðast. Fyrst snérust þær um stærri fyrirtækin en nú hefur landslagið breyst og smærri fyrirtæki eru farin að taka meiri þátt í alþjóðavæðingunni. Holland og Bretland hafa undanfarin ár verið mikilvæg útflutningslönd íslenskra fyrirtækja. Það var því áhugavert að kanna aðstæður í löndunum tveimur fyrir fyrirtæki sem starfar í hugbúnaðargeiranum. Það er ljóst að mikill og vandasamur undirbúningur er aðalforsenda þess að árangur náist. Varan þarf að vera einstök og skila virði til viðskiptavina sinna. Hæfni og kunnátta stjórnenda svo og annarra starfsmanna er lykill að því að góður árangur náist. Að mörgu leyti eru aðstæður í löndunum tveimur álíkar. Þau leggja mikla áherslu á að styðja við nýsköpun og þróun og reyna að gera umhverfi fyrirtækja í þessum geira sem best úr garði. Er það meðal annars gert með skattaívilnunum og aðlaðandi skattaumhverfi. Það er því niðurstaða höfundar þessarar rannsóknar að ef fyrirtæki ætlar að alþjóðavæðast þá sé það vel þess virði að rannsaka þessa markaði enn frekar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgerður Ásgeirsdóttir 1962-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26795

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgerður Ásgeirsdóttir 1962-. Alþjóðavæðing Greenqloud : ástæður og ákjósanlegar leiðir. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26795