Back to search

Bifröst University

Sjálfsafgreiðsla banka á höfuðborgarsvæðinu : rannsókn á viðhorfi viðskiptavina

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarin ár hefur hin almenna bankaafgreiðsla verið að taka á sig nýja mynd. Með tækniframförum síðustu ára hafa verið að koma upp nýjungar sem gefur fólki þann möguleika á að stunda bankaviðskipti hvar og hvenær sem er dags. Og þykir það eðlilegt að á hverju heimili sé til fartölva, spjaldtölva og eða snjallsími svo eitthvað sé nefnt sem auðveldar fólki að stunda hin almennu bankaviðskipti þegar því hentar. Bankarnir eru að færa sig yfir í þessar rafrænu aðgerðir svo sem netbanka, sjálfsafgreiðsluhraðbanka og banka-öpp. Þessar rafrænu leiðir eru þó ekki fyrir alla og eru því margir sem leitast við að fara í bankaútibú og fá persónulega þjónustu. Nokkrum bankaútibúum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið breytt á þann veginn að gjaldkerum hefur verið fækkað og sjálfsafgreiðsluhraðbönkum verið komið fyrir. Gerð var megindleg rannsókn til að skoða hvert viðhorf viðskiptavina bankanna á höfuðborgarsvæðinu er gagnvart þessari þróun að gjaldkerar séu að hverfa úr bönkunum og fólki í staðinn bent á að afgreiða sig sjálft í sjálfsafgreiðsluvélum eða annars konar rafrænni leið. Voru helstu niðurstöður þær að fólki finnst að bankarnir hafi ekki farið of hratt í að innleiða sjálfsafgreiðsluna og að innleiðingin hafi ekki bitnað á þjónustunni, það er að segja að þjónustu bankanna hafi ekki farið aftur með tilkomu sjálfsafgreiðslunnar. Fólk treystir starfsfólki bankanna og er jákvætt í garð síns viðskiptabanka í samræðum við aðra en fer varlega í að mæla með sínum viðskiptabanka við aðra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Sigurborg Sigmarsdóttir 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Einar Svansson 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26805

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Sigurborg Sigmarsdóttir 1980-. Sjálfsafgreiðsla banka á höfuðborgarsvæðinu : rannsókn á viðhorfi viðskiptavina. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26805