Bifröst University
Fer meðalaldur iðkenda innan golfhreyfingarinnar á Íslandi hækkandi? : hvernig má fjölga yngri iðkendum í íþróttinni?
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni ritgerðarinnar var að kanna hvort að raunin sé sú að meðalaldur iðkenda innan golfhreyfingarinnar á Íslandi fari hækkandi og hvað megi gera til þess að fjölga yngri iðkendum í íþróttinni. Framkvæmd var eigindleg rannsókn í formi viðtala sem tekin voru við fjóra stjórnendur sem allir leika stórt hlutverk innan golfhreyfingarinnar á Íslandi. Einnig studdist höfundur við töluleg gögn frá Golfsambandi Íslands sem sýndu þróun á fjölda meðlima í golfklúbbum á Íslandi frá árinu 2008 -2016 og einnig gögn sem sýndu keppendafjölda á þeim mótaröðum sem GSÍ heldur fyrir börn og unglinga. Helstu niðurstöður leiddu í ljós svo ekki verði um villst að meðalaldur iðkenda innan golfhreyfingarinnar á Íslandi fer hækkandi og hefur sú þróun verið stöðug frá árinu 2008. Til þess að fjölga yngri iðkendum í golfíþróttinni þarf að gera golfið skemmtilegra fyrir börn og unglinga. Fjölbreytileiki æfinga þarf að vera meiri og áherslurnar ekki bara þær að sigra. Vinahópar og stuðningur frá foreldrum skiptir máli og er mikilvægt að hafa skemmtilega og færa þjálfara sem sinna barna- og unglingastarfi. Ungmenni sem stunda einstaklingsíþróttir eru líklegri til þess að hætta þátttöku fyrr en þau sem stunda hópíþróttir og er því mikilvægt fyrir golfíþróttina að finna leiðir til þess að börnum og unglingum finnist þau frekar vera hluti af liði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurður Pétur Oddsson 1988-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/26807