Back to search

Bifröst University

Er mögulegt að nýta óseljanlegar tímabilsvörur ÁTVR til óáfengrar matvælaframleiðslu?

Abstract

dc:description.abstract

Matarsóun er hugtak sem mikið hefur verið í umræðunni á síðustu misserum. Hugtakið snýr að mestu um sóun á nothæfum matvælum, en lítið hefur farið fyrir umræðunni um sóun á drykkjarvörum. Einn flokkur drykkjavara hefur þó komið til tals í umræðunni um sóun, og eru það hinir svokölluðu tímabilsbjórar, eða bjórar sem einungis eru seldir í vínbúðinni á sérstöku tímabili. Eftir að jólabjóra sölutímabilinu lauk 6. Janúar 2016 var það í fréttum að um 30 þúsund lítrum af jólabjór hefði verið fargað. En er eitthvað hægt að gera til að koma í veg fyrir þessa tegund sóunar? Það er helsta rannsóknarefni þessa verkefnis, ásamt því að gerð verður viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki sem gæti nýtt sér þessar óseljanlegu tímabilsvörur til framleiðslu á matvörum. Tekin verða viðtöl við aðila sem þykja geta varpað ljósi á rannsóknina, leitað verður heimilda og farið yfir efni tengt lögum og reglum er varða efnið. Skoðað verður hvað þarf til við stofnun matvælafyrirtækis, og drög að viðskiptaáætlun lögð fyrir fyrirtækið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mögulegt er að stofna fyrirtæki sem framleiðir matvöru úr óseldum tímabilsvörum. Rannsóknin leiddi ekki í ljós nein lög eða reglur sem hindra aðgang að vörunum. Að öllu leyti fellur reksturinn undir hefðbundin ákvæði um rekstur matvælafyrirtækja. Svarið við rannsóknarspurningunni er því að það er hægt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Björk Benediktsdóttir 1978-
Advisor dc:description.advisor
  • Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26827

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Björk Benediktsdóttir 1978-. Er mögulegt að nýta óseljanlegar tímabilsvörur ÁTVR til óáfengrar matvælaframleiðslu?. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26827