Back to search

Bifröst University

Áhrif endurgjafar: Rannsókn áhrifaþátta á ánægju starfsfólks Íslandsbanka með frammistöðusamtöl árið 2015

Abstract

dc:description.abstract

Með auknum þroska mannauðsstjórnunar undanfarna áratugi og skýrari sýn á hversu mikilvægt það er að laða að og halda í rétta mannauðinn hefur það orðið hluti af rekstrinum að mæla frammistöðu starfsmanna. Tilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á upplifun starfsmanna Íslandsbanka með frammistöðusamtölin árið 2015 og hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á upplifun. Einnig var rannsakað hvort tengsl væru á milli endurgjafar og almennrar starfsánægju og hvort það væri munur á ánægju með frammistöðusamtal með tilliti til staðsetningar eða milli sviða innan bankans. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að tengsl eru milli starfsánægju, frammistöðumats og endurgjafar ásamt því að starfsmenn telja frammistöðumat nýtast sér í starfi. Spurningakönnun var lögð fyrir alla starfsmenn Íslandsbanka og var hluti af vinnustaðagreiningu bankans sem framkvæmd er árlega. Af 940 starfsmönnum svöruðu 884 starfsmenn vinnustaðagreiningunni og 704 af þeim fóru í frammistöðusamtal á árinu. Niðurstöður gefa til kynna að starfsmenn séu almennt ánægðir með frammistöðusamtölin og uppbyggingu þeirra en kalla eftir frekari endurgjöf og eftirfylgni ásamt meiri áherslu á markmið. Þegar niðurstöður eru skoðaðar út frá staðsetningu þá má sjá mun á ánægju með frammistöðusamtalið og það sama á við um þegar svið bankans eru borin saman. Jákvæð fylgni mælist milli starfsánægju og endurgjafar og ánægju með frammistöðusamtal. Ætla má að alhæfa megi niðurstöður að einhverju leyti yfir á þýðið. Lykilorð: frammistöðumat, endurgjöf, starfsánægja, frammistaða, mannauðsstjórnun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagný Eyjólfsdóttir 1984-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26840

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagný Eyjólfsdóttir 1984-. Áhrif endurgjafar: Rannsókn áhrifaþátta á ánægju starfsfólks Íslandsbanka með frammistöðusamtöl árið 2015. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26840