Back to search

Bifröst University

Réttaráhrif sem fylgja skiptri búsetu barns

Abstract

dc:description.abstract

Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er á sviði barnaréttar og fjallar um eins og nafnið gefur til kynna réttaráhrif skiptrar búsetu barna sem búa á tveimur heimilum. Tilgangurinn er að rannsaka þau réttaráhrif sem fylgja lögheimilisskráningu og ef heimilt væri samkvæmt lögum að barn gæti haft skipta búsetu. Árið 2006 var sameiginleg forsjá gerð að meginreglu í íslenskri barnalöggjöf og foreldrar þurfa að taka ákvörðun um hvar barnið hafi lögheimili Í kjölfarið hefur það aukist mikið að börn dvelji jafn mikið hjá báðum foreldrum. Við það hefur skapast mikill aðstöðumunur á milli lögheimilisforeldris og umgengnisforeldris. Opinber stuðningur eins og barnabætur og húsaleigubætur fara til lögheimilisforeldris og stuðningur og þjónusta á vegum sveitarfélaga. Út frá því er skoðað hvort foreldrar standi jafnir fyrir lögum. Meginniðurstaða ritgerðarinnar var sú að foreldrum sé mismunað út frá lögheimilisskráningu barnsins. Ef skipt búseta barns á tveimur heimilum yrði tekin upp í lögum þyrfti að fara í ýmsar breytingar á öðrum lögum til þess að minnka þann aðstöðumun sem foreldrar búa við. Þá er mikilvægt að gerðar verði breytingar á ákvæðum barnalaga um framfærslu í takt við þær samfélagslegu breytingar sem hafa orðið í þá átt að tekið verði mið af framfærslu barnsins og tekjum foreldra eða aflahæfis þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagbjört Gunnarsdóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Þorbjörg Inga Jónsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/26870

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagbjört Gunnarsdóttir 1982-. Réttaráhrif sem fylgja skiptri búsetu barns. 2017. https://hdl.handle.net/1946/26870