Back to search

Bifröst University

Um málsmeðferð stjórnsýslunefnda og fordæmisgildi úrlausna þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Með þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á þær málsmeðferðarreglur sem gilda fyrir sjálfstæðum stjórnsýslunefndum, annars vegar fyrir úrskurðarnefndum og hins vegar fyrir álitsgefandi nefndum, ásamt því að athuga fordæmisgildi ákvarðana innan stjórnsýslunnar. Mikilvægt er að málsmeðferðarreglur séu skýrar og aðgengilegar, hvort heldur sem er fyrir hinn almenna borgara eða stjórnvöld. Stjórnsýslulögin eru lágmarksreglur sem gilda meðal annars um málsmeðferð úrskurðarnefnda en ákvarðanir álitsgefandi nefnda falla ekki undir þau. Sérlög og reglugerðir um málsmeðferð úrskurðarnefnda ganga framar hinum almennu ákvæðum stjórnsýslulaga en allur gangur er á hversu ítarleg þau ákvæði eru. Þar sem málsmeðferð álitsgefandi nefnda fellur ekki innan ákvæða stjórnsýslulaga er mikið vafamál um hvaða reglum þær skulu lúta varðandi málsmeðferð. Skiptar skoðanir eru á því hvort ákvæði stjórnsýslulaga eigi að gilda og hafa dómstólar og umboðsmaður Alþingis fjallað um málið með ólíkum niðurstöðum. Fordæmisgildi ákvarðana innan stjórnsýslunnar styrkjast eftir því sem reglur um málsmeðferð og kröfur um sérþekkingu eru ítarlegri og einnig hefur birting sitt að segja um fordæmisgildið. Stjórnvöld leitast því við að fylgja jafnræði og samræmi í störfum sínum. Brýn þörf er á samræmingu og skýrleika í málsmeðferðarreglum fyrir sjálfstæðum stjórnsýslunefndum til að gæta að réttaröryggi borgaranna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Birna Magnúsdóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Daníel Isebarn Ágústsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/2832

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Birna Magnúsdóttir 1982-. Um málsmeðferð stjórnsýslunefnda og fordæmisgildi úrlausna þeirra. 2009. https://hdl.handle.net/1946/2832