Back to search

Bifröst University

Tónlistarstarf í leikskólum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er viðfangsefnið tónlistarstarf í leikskólum og þeir þættir sem hafa áhrif á hvort tónlist nýtist sem náms- og þroskaleið. Skoðað var hversu algeng áhersla á tónlistaruppeldi er í starfi með börnum í leikskólum, hvernig aðstæður til tónlistariðkunar eru, hvernig tónlistarstarfið birtist og hvað einkennir viðhorf leikskólastjóra til tónlistarstarfsins. Markmið rannsóknarinnar var að kanna stöðu tónlistar í leikskólum á Íslandi og hvaða þættir þurfi helst að vera til staðar til að tónlist nýtist í leikskólastarfi. Sem rannsóknaraðferð var ákveðið að nota blandaða leið; fyrst var könnun lögð fyrir leikskólastjóra um land allt og síðan voru tekin eigindleg viðtöl við aðila sem hafa reynslu af tónlistarstarfi í leikskóla til að skoða viðfangsefnið nánar. Í Aðalnámskrá leikskóla 2011 er settur fram ákveðinn rammi sem öllu starfi í leikskólum er ætlað að taka mið af. Tónlist er ætlað ákveðið hlutverk innan þess ramma og leiðir rannsóknin í ljós að leikskólastarfsfólk er meðvitað um það. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að leikskólastjórar gera sér grein fyrir mikilvægi tónlistar í leikskólastarfi og hafa mikinn vilja til að nýta tónlist til að ná markmiðum aðalnámskrár þar sem við á. Þekking og meðvitund um hvernig tónlist getur nýst sem náms- og þroskaleið er fyrir hendi, sérstaklega varðandi mál- og hreyfiþroska. Samkvæmt niðurstöðunum virðist aðstaða til tónlistariðkunar vera nokkuð góð hvað varðar hljóðfæraeign, bókakost og hlustunarefni. Þó koma fram vísbendingar um að tónlistarstarf sé að einhverju leyti hornreka í húsaskipan leikskóla. Enn fremur kemur fram sú skoðun að vöntun sé á starfsfólki sem treysti sér til að stýra og hafa frumkvæði að tónlistarstarfi, þ.e.a.s. að nýta aðstöðuna. Leikskólastjórar kalla eftir samstarfi við aðila með sérþekkingu á sviði tónlistar en vilja ekki síður efla leikskólakennara og ófaglært starfsfólk til dáða á tónlistarsviðinu. Lykilorð: Aðalnámskrá, Tónlistarstarf, Leikskólastjórar, Leikskólar, Aðbúnaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf María Ingólfsdóttir 1962-
Advisor dc:description.advisor
  • Kristín Dýrfjörð 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/28354

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf María Ingólfsdóttir 1962-. Tónlistarstarf í leikskólum. 2017. https://hdl.handle.net/1946/28354