Abstract
dc:description.abstractÞað sem rannsakanda langaði til að kanna var hvaða áhrif líðan starfsmanna hefur á þjónustugæði fyrirtækja sem í framhaldinu hefur áhrif á ánægju og tryggð viðskiptavina, framtíðarviðskipti fyrirtækjanna, samkeppnisforskot og hagnað fyrirtækja. Rannsakandi gerði sér þó grein fyrir að allir þessir þættir væru of viðamikið efni til að hægt væri að setja það í BS ritgerð, þar af leiðandi verður einungis reynt að fá smá innsýn í streitu starfsmanna og þjónustugæði fyrirtækja. Mikið hefur verið fjallað um streitu og afleiðingar hennar undanfarin ár og hefur rannsakandi rekist á greinar þar sem talað er um að streita hafi neikvæð áhrif á landsframleiðslu vestrænna ríkja, hún hafi áhrif á stóran hluta forfalla á vinnumarkaði í Evrópu og sé tengd aukningu í örorkumati á Íslandi. Í ljósi þessara upplýsinga er vert að spyrja hvort stjórnendur fyrirtækja ættu að sýna meiri samfélagslega ábyrð með því að veita starfsmönnum meiri stuðning vegna sálfélagslegra þátta. Eigindleg rannsókn var gerð í formi viðtala við einn viðskiptasálfræðing, einn fyrirtækja- og vinnusálfræðing og einn ráðgjafa í heilsu og vinnuvernd. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að starfsmenn geti ekki veitt sömu gæði í þjónustustörfum þegar þeir eru undir miklu álagi. Og styður fræðikafli ritgerðarinnar við vísbendingar rannsóknarinnar þar sem svipaðar niðurstöður koma fram þar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Maríanna Þorgilsdóttir 1973-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/28421