Back to search

Bifröst University

Reykjanes : möguleikar í ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Stærsti hluti ferðamanna sem kemur til landsins fer í gegnum Reykjanesið en flestir þeirra staldra þar stutt við. Með auknum ferðamannastraumi til landsins hafa bæjarfélög á svæðinu verið að opna augun fyrir ferðaþjónustu. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða stöðu ferðaþjónustunnar á Reykjanesi og sjá hvort ekki væri möguleiki á að auka hana. Stuðst var við eigindlega rannsókn í formi hálfopinna viðtala til að fá svar við spurningunni. Töluleg greining var gerð út frá tölulegum gögnum frá stofnunum á borð við Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að möguleiki er til staðar á að auka ferðaþjónustu á Reykjanesi. Möguleikarnir eru að fjárfesta í gistingu, afþreyingu og þjónustu víðs vegar um svæðið. Svæðið í nálægð við Reykjanesvita, þar sem verið er að reisa þjónustumiðstöð, er vænlegt svæði fyrir frekari uppbyggingu. Byggja upp bæjarfélögin á svæðinu með það fyrir augum að þau séu ákjósanlegur staður fyrir ferðamenn að heimsækja og dvelja í. Horfa til þeirra bæjarfélaga sem uppbygging hefur gengið vel eins og Siglufjörð, Stykkishólm, Hofsós og Akureyri svo einhverjir bæir séu nefndir. Uppbyggingin væri menningartengd og myndi saga og menning bæjanna vera dregin fram. Sem dæmi gæti uppbygging í Grindavík og Sandgerði verið í anda Siglufjarðar í Fjallabyggð. Reykjanesbær hefur upp á að bjóða gamlan bæjarreit sem hægt væri að byggja upp líkt og Stykkishólmur og Hofsós hafa gert í uppbyggingu á sínum gömlu bæjarreitum. Að auki mætti gera meira út á afþreyingar eins og sjósund, hvalaskoðun, brimbretti, fjórhjóla- og hestaferðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálmi Ketilsson 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29119

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálmi Ketilsson 1986-. Reykjanes : möguleikar í ferðaþjónustu. 2017. https://hdl.handle.net/1946/29119