Bifröst University
Viðhorf starfsfólks í velferðarþjónustu til starfsumhverfis, forystu og stjórnunar
Abstract
dc:description.abstractStarfsumhverfi í velferðarþjónustu skiptir miklu máli og fyrri rannsóknir benda til þess að gott starfsumhverfi getið aukið starfsánægju, gæði þjónustu og haft jákvæð áhrif á árangur skipulagsheilda í þágu hagsmuna samfélagsins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf starfsmanna til starfsumhverfis, forystu og stjórnunar á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Valin var megindleg rannsóknaraðferð og rannsóknarsniðið var lýsandi sambandsrannsókn. Í upphafi rannsóknar var mælitæki um forystu og stjórnun þýtt úr enskri útgáfu. Úrtakið í rannsókninni var 1.127 starfsmenn sem störfuðu á þremur þjónustusviðum á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Við greiningu gagna var notuð lýsandi tölfræði, reiknaðir fylgnistuðlar, gerð aðhvarfsgreining og marktektarpróf. Helstu niðurstöður gefa til kynna að í starfsumhverfi á Velferðarsviði er þjónandi forysta til staðar. Starfsánægja hafði jákvæða fylgni við þjónandi forystu og við alla undirþætti þjónandi forystu. Vægi þjónandi forystu var mest í hópi yfirmanna og að meðaltali var starfsánægja meiri hjá konum, hjá starfsmönnum með framhaldskólamenntun og hjá þeim sem störfuðu í minna en 20 klukkustundir á viku. Starfsánægja hefur jákvæð marktæk tengsl við þjónandi forystu og er það í takt við íslenskar og erlendar rannsóknir. Starfsumhverfið leggur áherslu á að meta samstarfsfólk og traust og virðing er til staðar. Tækifæri í forystu, stjórnun og starfsumhverfinu felast í því að skerpa á forystu og framtíðarsýn og frekari uppbyggingu á sviði mannauðsmála. Mikilvægt er að huga að vinnuálagi í starfsumhverfinu og þeim þáttum sem efla og hvetja starfsfólk. Efling í starfi stuðlar að vexti og þroska í starfi sem getur bætt hag starfsmanna, gæði þjónustunnar og árangur skipulagsheildarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eydís Ósk Sigurðardóttir 1970-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigrún Gunnarsdóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/29128