Abstract
dc:description.abstractRitgerðin er á sviði skattaréttar en afmarkast við virðisaukaskatt. Nánar tiltekið við 10. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988 sem kveður á um undanþágu banka, sparisjóða og annarra lánastofnana, svo og verðbréfamiðlunar frá innheimtu og greiðslu virðisaukaskatts af þjónustu þeirra. Einnig að því marki sem nauðsynlegt er við þær réttarreglur er varða starfsumhverfi fjármálafyrirtækja. Í ritgerðinni var leitast við að greina eftirfarandi: Hvaða starfsemi fjármálafyrirtækja telst skattskyld í skilningi laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Hvaða þættir í starfsemi fjármálafyrirtækja teljast undanþegnir virðisaukaskatti samkvæmt lögunum. Hvernig ber að fara með samsetta þjónustuþætti þegar mörk skattskyldu og undanþágu skarast. Hvernig ber að fara með þjónustu fjármálafyrirtækja til eigin nota með tilliti til virðisaukaskatts. Farið var yfir hvort og þá hvaða heimildir fjármálafyrirtæki hafa til nýtingar innskatts og samhengi virðisaukaskatts og fjársýsluskatts, sbr. lög nr. 165/2011. Jafnframt var fyrrgreind undanþága skoðuð með tilliti til þess hvort hún tæki til annarra aðila í sambærilegri starfsemi. Einnig voru valin álitaefni úr danskri og evrópskri skattframkvæmd til samanburðar. Meginniðurstaða ritgerðarinnar er sú að mörg álitaefni eru til staðar þegar kemur að túlkun á því hvaða þjónusta í fjármálastarfsemi skuli bera virðisaukaskatt. Ljóst er að endurskoða þarf undanþáguákvæðið og setja skýrari reglur um túlkun þess.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigrún Rósa Björnsdóttir 1970-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Ingvadóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/29164