Back to search

Bifröst University

Markaðsáætlun fyrir Pylsumeistarann : hvaða markaðir/markhópar eru ákjósanlegir fyrir Pylsumeistarann? Hvaða leiðir í markaðssetningu myndu skila mestum árangri fyrir Pylsumeistarann?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er markaðsáætlun sem unnin er fyrir matvælaframleiðandann Pylsumeistarann. En það er sælkeraverslun með pylsur og álegg sem eru framleitt úr úrvalshráefnum. Í verkefninu er reynt að finna þann markað sem fyrirtækið er á og hvaða leiðir í markaðssetningu skili Pylsumeistaranum sem mestum árangri. Til þess að fá skýra mynd af þeim neytendum sem versla við Pylsumeistarann var framkvæmd spurningakönnun í versluninni. Þar voru viðhorf og skoðanir í garð vörunnar kannaðar ásamt því sem reynt var að fá staðfestar þær hugmyndir sem eigandinn hafði um það hver markhópurinn væri. Niðurstöður voru í takt við það sem búist var við. Þeir sem versla við Pylsumeistarann eru meðvitaðir um það sem þeir neyta og stunda reglulega hreyfingu. Þetta bendir til þess að varan höfði til heilsusinnaðra einstaklinga. Lýðfræðilegar breytur sýna að það eru fleiri karlar en konur sem versla við Pylsumeistarann, þeir búa frekar á Reykjarvíkursvæðinu og eru fleiri en tveir í heimili. Þá virtust viðskiptavinirnir vera á öllum aldri og ekki var hægt að velja sérstakan aldurshóp. Gerð var SVÓT-greining og ytra og innra umhverfið greint. Sjá mátti að ógnirnar liggja í umtali um skaðsemi unninnar matvöru en tækifærin liggja í gæðamerki fyrirtækisins og heilsuvörumarkaðinum. Styrkleikar eru starfsfólkið og það góða orðspor sem af fyrirtækinu fer, veikleikarnir eru heimasíða fyrirtækisins og skortur á þekkingu í markaðsmálum. Að lokum var framkvæmd markaðsmiðun þar sem fyrirtækið var staðfært á markaði. Best væri fyrir Pylsumeistarann að staðfæra sig betur með tilliti til innihalds og heilsu og vinna sig meira inn á þann markað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóra Margrét Sigurðardóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29166

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóra Margrét Sigurðardóttir 1982-. Markaðsáætlun fyrir Pylsumeistarann : hvaða markaðir/markhópar eru ákjósanlegir fyrir Pylsumeistarann? Hvaða leiðir í markaðssetningu myndu skila mestum árangri fyrir Pylsumeistarann?. 2017. https://hdl.handle.net/1946/29166