Back to search

Bifröst University

Milliliðalaus sönnunarfærsla með stofnun Landsréttar.

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirmæli um meginregluna um milliliðalausa sönnunarfærslu er að finna í ákvæðum 6. gr. MSE og 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, um réttláta málsmeðferð, ásamt ákvæðum í lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála og lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Lögin greina frá þeim réttarfarsreglum sem skal fylgja við rekstur einkamála og sakamála fyrir dómstólum. Ritgerðin varpar ljósi á hvert inntak reglunnar um milliliðalausa sönnunarfærslu er og hvernig henni er framfylgt með núverandi tveggja stiga dómkerfi og hvernig henni er betur fylgt með stofnun millidómstigs sem færir íslenska dómskipan nær því skipulagi sem er á Norðurlöndunum. Reglan spilar stórt hlutverk ásamt þeim reglum sem falla undir meginregluna um réttláta málsmeðferð fyrir dómstólum. Landsréttur er áfrýjunardómstóll á millidómstigi og mun hann koma til með að létta af því mikla álagi sem er á Hæstarétti Íslands sem hefur starfað sem áfrýjunardómstóll, en honum er einnig ætlað að hafa fordæmisgefandi hlutverk. Landsréttur hefur heimild til að taka til endurskoðunar öll atriði dóma héraðsdóms og framkvæma munnlegar skýrslutökur eftir því sem nauðsyn er. Rannsókn á því hvernig milliliðalaus sönnunarfærsla er tryggð með stofnun Landsréttar byggir að mestu á lögum, dómum og ritum fræðimanna, leitast er við að skýra hugtök og efni skilyrða. Í niðurstöðum ritgerðarinnar má finna greiningu á skilyrðum milliliðalausrar sönnunarfærslu og samspili hennar við aðrar reglur, ásamt því hver afmörkun hennar er í dómaframkvæmd og ákvæðum laga. Að lokum má finna niðurstöður og skýringar á því hvernig málsmeðferð verður fyrir Landsrétti og með hvaða hætti meginreglan um milliliðalausa sönnunarfærslu er tryggð fyrir áfrýjunardómstólnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir. 1991-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29168

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir. 1991-. Milliliðalaus sönnunarfærsla með stofnun Landsréttar.. 2017. https://hdl.handle.net/1946/29168