Back to search

Bifröst University

Hvort bera neytendur meira traust til hefðbundinna miðla eða áhrifavalda á samfélagsmiðlum þegar kemur að auglýsingu á vörumerkjum fyrirtækja og hefur aldur eitthvað með það að gera?

Abstract

dc:description.abstract

Það kannast allir við að hafa orðið varir við markaðsskilaboð af einhverju tagi. Hvort sem það eru auglýsingar í sjónvarpi, útvarpi, á vefborðum heimasíðna, á samfélagsmiðlum eða á samfélagsmiðlum hjá áhrifavöldum. Markmið rannsóknarinnar var að reyna að komast að því hvort neytendur beri meira traust til hefðbundinna miðla eða áhrifavalda á samfélagsmiðlum þegar kæmi að auglýsingu vörumerkja fyrirtækja. Einnig að kanna hvort aldur hefði einhver áhrif á traust neytenda á þessum tveimur miðlum. Lögð var fyrir spurningakönnun þar sem þátttakendur voru spurðir ýmissa spurninga út í notkun þeirra á samfélagsmiðlum, fylgni áhrifavalda, eftirtekt hefðbundinna miðla, traust þeirra á áhrifavalda á samfélagsmiðlum, traust þeirra á hefðbundnum miðlum o.fl. Niðurstöður úr rannsókninni leiddu í ljós að þátttakendur í heild sinni bæru jafn mikið traust til áhrifavalda á samfélagsmiðlum og til hefðbundinna miðla. Eftir að hafa skoðað áhrif aldurs kom í ljós að þeir þátttakendur sem voru yngri en 30 ára bæru meira traust til áhrifavalda á samfélagsmiðlum heldur en til hefðbundinna miðla. Og í kjölfarið að þátttakendur 30 ára og eldri bæru meira traust til hefðbundinna miðla frekar en áhrifavalda á samfélagsmiðlum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Smáradóttir 1989-
Advisor dc:description.advisor
  • Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29703

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Smáradóttir 1989-. Hvort bera neytendur meira traust til hefðbundinna miðla eða áhrifavalda á samfélagsmiðlum þegar kemur að auglýsingu á vörumerkjum fyrirtækja og hefur aldur eitthvað með það að gera?. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29703