Back to search

Bifröst University

Viðhorf notenda Facebook til auglýsinga á miðlinum

Abstract

dc:description.abstract

Viðhorf fólks til auglýsinga getur haft áhrif á mat þess á einstökum auglýsingum. Viðhorfið leiðir svo af sér að mat þeirra á auglýsingunum hefur áhrif á kauphegðun neytanda sem og viðhorf þeirra til vörumerkisins. Í dag eru mörg fyrirtæki komin með stafrænan hluta í markaðsáætlanir sínar þar sem auðvelt er að miða skilaboðum sínum að einstaklingum og klæðskerasníða auglýsingarnar að þeirra áhugasviði með greiningartólum Facebook. Almennt viðhorf einstaklinga til auglýsinga á Facebook getur því gefið markaðsfólki mikilvægar upplýsingar um hversu mikil áhrif auglýsingar þeirra hafa. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf íslenskra notenda til auglýsinga á Facebook, ásamt því að skoða hvaða þættir skýra viðhorf notenda Facebook til auglýsinga á miðlinum og hvort viðhorf til auglýsinga væri ólíkt eftir tíma sem viðkomandi eyðir á miðlinum. Niðurstöður leiddu í ljós að viðhorf fólks til auglýsinga á Facebook er nálægt hlutleysi en þó fremur neikvætt. Þátttakendur telja auglýsingar á Facebook ekki vera af hinu góða og finnst þeim heldur óþægilegt að safnað sé um þau upplýsingar og þær nýttar til auglýsingagerða. Munur var þó á viðhorfi fólks eftir aldri og var ungt fólk að öllu jöfnu með betra viðhorf til þess að safnað sé um þau gögnum og auglýsingar séu persónusniðnar til þeirra en það eldra, sem myndi heldur kjósa handahófskenndar auglýsingar. Einnig var munur á viðhorfi þátttakenda eftir kyni en kvenfólk er með betra viðhorf en karlmenn sem mældust fremur neikvæðir. Að lokum var svo hægt var að greina mun á viðhorfi fólks eftir tíma en fólk sem eyðir meiri tíma en 3 klukkustundum á dag á Facebook finnst auglýsingarnar skemmtilegri og finna meiri afþreygingu í þeim en þeir sem eyða undir klukkustund á dag. Einnig kom í ljós að fjórðungur fólks notar auglýsingavarnir en stærstur hluti þeirra eru karlmenn og ungt fólk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Ýr Pálsdóttir 1989-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29705

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Ýr Pálsdóttir 1989-. Viðhorf notenda Facebook til auglýsinga á miðlinum. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29705