Bifröst University
Þjónustugæði Apóteks Vesturlands : skynjuð frammistaða fyrirtækis og forgangsröðun úrbóta
Abstract
dc:description.abstractÞjónusta er sú atvinnugrein sem á undanförnum árum hefur öðlast mikið vægi víðsvegar í heiminum en greinin er bæði atvinnu- og gjaldeyrisskapandi. Þjónusta er orðin ein af undirstöðugreinum avinnulífs og menningar á Íslandi og ef horft er til núverandi þróunar og nýsköpunar í atvinnugreininni, bendir allt til þess að þjónusta muni gegna veigamiklu hlutverki í íslensku efnahagslífi um ókomin ár. Í þessari ritgerð voru gæði þjónustu í Apóteki Vesturlands greind með megindlegri rannsóknaraðferð. Stuðst var við greiningartækið RSQS (e. retail service quality scale) við mælingar á þjónustugæðum en tækið leggur mat á gæði þjónustu út frá fimm gæðavíddum þjónustu. Gæðavíddir RSQS eru áþreifanleiki, áreiðanleiki, persónuleg samskipti, lausn vandamála og stefna. Markmið rannsóknarinnar var að meta þjónustugæði Apóteks Vesturlands út frá frammistöðu fyrirtækisins og gæðavíddum þjónustu. Við framkvæmd á þessari rannsókn var einnig notast við sérstök styrkleikabil, til þess að leggja mat á hvort þörf væri á einhverjum úrbótum á þjónustuþáttum fyrirtækisins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að viðskiptavinir væru einna ánægðastir með hjálpsemi og kurteisi starfsmanna. Þá greindu niðurstöður rannsóknarinnar að þörf væri á aðgerðum á þjónustuþáttum fyrirtækisins í gæðavíddinni áþreifanleiki
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svandís Erla Ólafsdóttir 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/29709