Back to search

Bifröst University

Hvernig get ég aðstoðað? Rannsókn á eflingu gæða í ferðaþjónustu út frá þjóðerni.

Abstract

dc:description.abstract

Ör vöxtur íslenskrar ferðaþjónustu hefur verið áberandi undanfarin ár. Sífelld aukning er á komum ferðamanna hingað til lands og hefur innviðauppbygging ekki náð að halda í við þennan mikla vöxt. Í þessari rannsókn voru þjónusta og gæði innan greinarinnar skoðuð út frá fjórum mismunandi þjóðernum, Bandaríkjamönnum, Kínverjum, Japönum og Rússum. Skoðað var hvernig mismunandi menningarleg gildi, væntingar og siðir þeirra hafa áhrif á upplifun þeirra sem ferðamenn á Íslandi. Þjóðernin voru greind eftir menningarvíddum Geerts Hofstede og einnig voru tekin eigindleg viðtöl við fjóra fagaðila í ferðaþjónustu Rannsóknin var unnin út frá sex þrepa líkani Kotlers og Kellers þar sem viðfangsefni rannsóknar var ákveðið og rannsóknaráætlun gerð. Útfrá því var rannsóknarspurning ákveðin sem og markmið og tilgangur verkefnisins. Niðurstöðurnar voru þær að mikið svigrúm er til bætinga í þjónustu og gæðum innan greinarinnar. Þessir hlutir eru partur af þeim innviðum sem ekki hafa náð að halda í við vöxtinn. Tillögur að úrbótum voru settar fram í lokin þar sem mikil þróun hefur orðið í viðhorfi ferðaþjónustuaðila til þjónustu og gæða og þeirri staðreynd hversu mikið þau geta bætt samkeppnisforskot Íslands sem áfangastaðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vala Rún Vilhjálmsdóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29710

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vala Rún Vilhjálmsdóttir 1982-. Hvernig get ég aðstoðað? Rannsókn á eflingu gæða í ferðaþjónustu út frá þjóðerni.. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29710