Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er farið yfir þróun kynjajafnréttis á Alþingi. Niðurstöður hennar eru kynntar og gert grein fyrir því hvernig þróunin hefur átt sér stað. Það var enn fremur markmið og tilgangur ritgerðarinnar að skoða þessa þróun ásamt því að sjá hví þróunin sé hæg. Saga baráttunnar fyrir kynjajafnrétti spannar vel yfir hundrað ár og er henni langt frá því að vera lokið. Sagt er að Ísland sé það ríki í heiminum sem er komið hvað lengst í kynjajafnréttismálum. Þrátt fyrir það á þjóðin enn langt í land með að ná fullkomnu kynjajafnrétti. Unnið var að ritgerðinni með því að afla heimilda um viðfangsefni. Þær heimildir voru ítarlega rýndar til að finna út hverjar hentuðu ritgerðinni best. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu meðal annars í ljós að á Íslandi hafa átt sér stað fimm stór stökk hvað varðar hlutföll kvenna á Alþingi. Ástæðurnar fyrir þessum stökkum hafa þó verið mismunandi. Óhætt er að segja að þróunin í átt til kynjajafnréttis á Alþingi virðist að mestu leyti, fara vaxandi. Það má þó telja þróunina vera nokkuð hæga, sérstaklega þegar litið er til þess að heil öld sé liðin frá því að íslenskar konur hlutu kjörgengi og kosningarétt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásdís Björg Björgvinsdóttir 1992-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ásta Jóhannsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/29728