Abstract
dc:description.abstractÍ þessari BS ritgerð mun höfundur gera viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið Vík Verkstæði og áform fyrirtækisins að breyta rekstri sínum, úr viðgerðum á vöruflutninga- og hópferðabílum, yfir í að framkvæma prófanir á ökuritum og hraðatakmörkurum. Ásamt því hyggst fyrirtækið kaupa umboð fyrir innflutning á hágæða verkfærum frá varahlutaframleiðandanum VDO. Í þessari ritgerð mun höfundur keppast við að fara eftir þeim aðferðum sem IMPRA nýsköpunarmiðstöð hefur sett saman. Viðskiptaáætlunin gengur út á það að kanna hvort það sé ákjósanlegur kostur að fara út í þessa breytingu á fyrirtækinu. Skoða skal hvort þessi breyting eigi eftir að reynast arðsamleg fyrir eigendur fyrirtækisins. Höfundur valdi þetta efni sökum þess að hann verður annar eigandinn af fyrirtækinu sem stendur uppi ef breytingarnar eiga sér stað og hefur hann því mikinn áhuga á verkefninu. Ritgerðin er unnin út frá þeim aðstæðum og forsendum sem eru til staðar og vitað er að hlutir geta breyst á stuttum tíma. Því er gengið út frá þeim tölum og áætlunum sem eru til staðar þegar skrif á ritgerðinni hefst.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andri Már Ágústsson 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Jón Snorri Snorrason 1955-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/29743