Back to search

Bifröst University

Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, með lögum nr. 142/2010 : varðandi fyrningarfrest

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að svara rannsóknarspurningunni: ,,Hvaða þýðingu hafði breyting á lögum um gjalþdrotaskipti o.fl, nr. 21/1991, með lögum nr. 142/2010”. Til að komasta að niðurstöðu verður leitað svara við eftirfarandi spurningum: Nr. 1. Hver túlkun á 3. mgr. 1. gr. laga nr. 142/2010, hefur verið á þeim tíma sem liðinn er frá gildistöku laganna. Nr. 2. Hvort breytingin gilti bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki/félög. Nr. 3. Hvort fleiri fóru í gjaldþrot eftir breytinguna. Nr. 4. Af hverju breytingarlögin nr. 142/2010 hafi ekki verið endurskoðuð. Fyrst og fremst verður horft til breytingarlaganna nr. 142/2010 og undirbúningsgagna löggjafans, einnig lög um fyrningu kröfuréttinda nr. 150/2007. Skoðaðir verða dómar sem fallið hafa í málum sem snúa að lögum nr. 142/2010. Í niðurstöðum er sú ályktun dregin að fjármálahrunið 2008 hafi átt stærstan þátt í að lögin um tveggja ára fyrningarfrest voru sett til þess að gjaldþrota einstaklingar gætu rétt við fjárhag sinn. Af dómafordæmum er sú niðurstaða dregin að mest reynir á túlkun 3. mgr. 1. gr. laganna um slit á fyrningarfresti fyrir dómstólum, sem hafa túlkað ákvæðið þröngt. Og einnig að lögin giltu aðeins fyrir einstaklinga en ekki fyrirtæki. Þá er það niðurstaða greiningar að fleiri urðu gjaldþrota eftir lagasetninguna. Og í ljós kom að lögin eru enn í gildi og ekki stendur til að breyta þeim. Lykilhugtök: Lögfræði. Fyrningarfrestur. Gjaldþrot. Einstaklingar. Félög/fyrirtæki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Ásta Helgadóttir 1957-
Advisor dc:description.advisor
  • Ingibjörg Ingvadóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29764

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Ásta Helgadóttir 1957-. Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, með lögum nr. 142/2010 : varðandi fyrningarfrest. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29764