Back to search

Bifröst University

,,Þjóðleikur snertir marga en fer samt svo undurlágt“ : þátttaka unglinga í Þjóðleik, leiklistarhátíð sem haldin er á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Þjóðleikur er leiklistarhátíð unglinga sem haldin hefur verið annað hvert ár á landsbyggðinni frá árinu 2009. Frumkvæðið að stofnun hans eiga framkvæmdastjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins, þjóðleikhússtjóri og Menningarmiðstöð Austurlands. Þjóðleikur hefur verið uppspretta nýrra leikverka fyrir unglinga en jafnframt verið samkoma þar sem unglingar á aldrinum 13 ára til 20 ára hittast, sýna leikrit og horfa á leikrit. Frumsamin íslensk leikverk. Leikstjórar á Þjóðleik koma víðsvegar að af landinu og það er þeirra verk að mæta með leikhóp og koma upp sýningu á hátíðunum. Rannsóknin beinist að starfi leikstjóra á Þjóðleik, æfingatímabilinu og unglingaleikhópnum sem tekur þátt. Rannsóknin er starfendarannsókn en rannsókninni til stuðnings eru einnig tekin eigindleg viðtöl við hópa og valda aðila. Markmiðið með rannsókninni er að sýna fram á hvernig leikstjóri getur haft áhrif á þátttakendur í Þjóðleik og hvernig unglingarnir þroskast á þátttöku í Þjóðleik. Einnig eru niðurstöður rannsóknarinnar, í samanburði við markmið Þjóðleiks, hafðar til hliðsjónar í umfjölluninni. Helstu niðurstöður eru þær að markmiðum Þjóðleiks hafi verið náð og að leikstjóra hafi tekist að valdefla nemendur sem tóku þátt í hátíðinni. Höfundur hefur víðtæka reynslu af leikstjórn unglingahópa og áhugaleikfélaga. Hann starfaði sem leiklistarkennari og hefur farið með verkefni á Þjóðleik árið 2009 og á hátíðina þar sem þessi rannsókn fór fram, árið 2017. Lykilorð: [Þjóðleikur, leiklist, starfendarannsókn, leikstjóri, menningarstjórnun, valdefling, samvinnunám, leiklistarkennari, skapandi kennsla]

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Guðrún Gestsdóttir 1963-
Advisor dc:description.advisor
  • Ása Helga Ragnarsdóttir 1949-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 11

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29766

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Guðrún Gestsdóttir 1963-. ,,Þjóðleikur snertir marga en fer samt svo undurlágt“ : þátttaka unglinga í Þjóðleik, leiklistarhátíð sem haldin er á Íslandi. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29766