Back to search

Bifröst University

Hvert er inntak og gildissvið 4. gr. 7. viðauka MSE og áhrif reglunnar á íslenskan rétt með áherslu á skattalagabrot?

Abstract

dc:description.abstract

Ne bis in idem er hugtak á latínu sem þýðir að enginn skuli sæta refsingu tvisvar fyrir sama brot. Í nútímaréttarfari hefur þetta hugtak fest sig í sessi sem ein af grunnreglum mannréttinda og helsta birtingarmynd þess er í Mannréttindasáttmála Evrópu sem mörg ríki hafa skuldbundið sig til að framfylgja, þar á meðal Ísland. Löggjöf um tekjuskatt veitir íslenskum skattyfirvöldum heimild til að ljúka málum með sektargerð, endurálagningu skattstofns ásamt því að leggja viðurlög á. Þeim er einnig heimilt að vísa málum til lögreglurannsóknar sem getur leitt til útgáfu ákæru og dómsmáls í kjölfarið. Ritgerðin fjallar um þessi ákvæði í löggjöfinni og framkvæmd þeirra með hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Áður fyrr ríkti mikil óvissa varðandi hvernig bæri að túlka bannið við tvöfaldri málsmeðferð og hvort það ætti við skattalagabrot hérlendis. Svo var það vorið 2017 sem úrskurður MDE var upp kveðinn og hafði hann að geyma túlkunarsjónarmið og leiðbeinandi skilyrði sem skýrðu hvort um brot á banninu væri um að ræða eða ekki. Var niðurstaðan sú að tvöföld málsmeðferð væri aðeins heimil að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og væri íslenska ríkinu skylt að fara eftir því. Þannig getur verið að stjórnsýslulegri meðferð ljúki með refsingu vegna brota á skattalöggjöf, en án þess að búið sé að refsa fyrir brot á almennum hegningarlögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Andri Gunnarsson 1995-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/29776

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólafur Andri Gunnarsson 1995-. Hvert er inntak og gildissvið 4. gr. 7. viðauka MSE og áhrif reglunnar á íslenskan rétt með áherslu á skattalagabrot?. 2018. https://hdl.handle.net/1946/29776