Abstract
dc:description.abstractÞað er fyrirtækjum mikilvægt að þekkja markhópa sína og það umhverfi sem þau starfa í. Til þess að fyrirtæki séu samkeppnishæf á markaði þurfa ákveðnir þættir að vera til staðar. Mikilvægt er að setja sér markmið og stefnu, en einnig takmarkanir. Ef unnið er út frá þeim gildum sem lagt er upp með í byrjun og markmið skýr er líklegra að langtíma árangur náist. Hring eftir hring er hönnunarfyrirtæki sem starfar á íslenskum skartgripamarkaði. Í skýrslunni voru kannaðir þeir þættir sem þurfa að vera til staðar til þess að fyrirtæki af þessari stærðargráðu nái árangri og stöðugleika í samkeppnisumhverfi sínu. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að finna hverjir raunverulegir markhópar fyrirtækisins voru, ásamt því að skoðuð var kauphegðun neytenda á skartgripamarkaði. Í fyrstu var vandamálið skilgreint ásamt fræðilegum hugtökum og nálgunum. Lesanda verður gerð grein fyrir stöðu fyrirtækisins eins og hún er í dag í þeim tilgangi að öðlast frekari skilning á viðfangsefninu. Þau greiningartól sem notast var við voru PEST, TASK og SVÓT. Framkvæmd var bæði eigindleg og megindleg rannsókn þar sem lagðar voru fyrir spurningakannanir og tekin voru viðtöl. Stuðst var við SOSTAC módelið við gerð markaðslegrar stefnumótunar. Í lokin var gerð grein fyrir markaðsrannsókninni og niðurstöður birtar. Helstu niðurstöður voru þær að sú ímynd sem fyrirtækið hefur í augum viðskiptavina var í takt við gildi fyrirtækisins og almennt ríkti ánægja og traust meðal þeirra. Í ljós kom að ekki er mikil vörumerkjavitund meðal almennings. Markhópar fyrirtækisins voru skilgreindir og þá var einnig farið ítarlega yfir þá þætti sem þurfti að bæta í innviðum fyrirtækisins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ása María Þórhallsdóttir 1984-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/31508