Back to search

Bifröst University

Hvaða þættir valda því að neytendur velja sér áhrifavalda og hver eru áhrif þeirra á neytendur

Abstract

dc:description.abstract

Í heimi internetsins eru áhrifavaldar að verða sífellt meira áberandi og markaðsítök þeirra geta verið mikil. Markmið þessa verkefnis var að sjá hver væru mikilvægustu einkenni áhrifavalda og sjá hver áhrif áhrifavalda væru á neytendur og kauphegðun þeirra. Höfundur gerði tvíþætta rannsókn, notaðist á við eigindlega aðferð þar sem viðtöl voru tekin við sérfræðinga á sviði samfélagsmiðla og svo megindlega aðferð það sem niðurstöður viðtala voru notaðar til að útbúa spurningar fyrir neytendur. Spurningakönnun var síðan lögð fyrir notendur Facebook. Helstu niðurstöður voru þær að sérfræðingum og þátttakendum könnunnar bar ekki saman um mikilvægustu einkenni áhrifavalda, á meðan að sérfræðingar trúðu því að trúverðugleiki væri mikilvægasta einkenni þeirra og það að vera skemmtilegur mikilvægt en alls ekki til jafns á við trúverðugleikann þá sögðu þeir sem svöruðu spurningakönnuninni að mikilvægasta einkennið væri að áhrifavaldur fjallaði um efni sem viðkomandi hefði áhuga á en trúverðugleiki kom á eftir mikilvægi þess að vera skemmtilegur. Áhrif áhrifavalda á neytendur dvína hins vegar hratt skynji þeir að áhrifavaldur sé að auglýsa vöru í umfjöllun sinni án þess að merkja umfjöllunina sem kostaða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elísabet Halldórsdóttir 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/31513

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísabet Halldórsdóttir 1980-. Hvaða þættir valda því að neytendur velja sér áhrifavalda og hver eru áhrif þeirra á neytendur. 2018. https://hdl.handle.net/1946/31513