Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur. Þjónustu er ætlað að gera lífið auðveldara og skapa ávinning, en hana þarf að framkvæma rétt. Í þessari ritgerð er fjallað um hvaða þætti stjórnendur þurfa að hafa skilning á til að geta metið síbreytilegar væntingar neytenda. Fjallað er meðal annars um myndun þjónustubila (e. service gaps), sem myndast þegar þjónusta uppfyllir ekki væntingar og hvað er hægt að gera til að minnka þau. Skynjun viðskiptavina segir til um gæði þjónustunnar. Fjallað er um þá þætti sem stjórnendur geta haft áhrif á til að bæta skynjun viðskiptavina og þannig aukið líkur á að standast væntingar. Misty, leggur mikla áherslu á góða og persónulega þjónustu og hefur gert um langt árabil. Markmið þessa verkefnis er að kanna skynjun viðskiptavina á þjónustunni og leggja mat á hvar útbótaværi þörf. Viðfangsefnið var skoðað út frá fræðunum um þjónustustjórnun og voru rannsóknaspurningarnar eftirfarandi: 1. Hvernig meta viðskiptavinir frammistöðu einstakra þjónustuþátta hjá Misty? 2. Hvaða þjónustuþætti þarf að bæta til að auka þjónustugæði Misty? 3. Hversu tryggir eru viðskiptavinir Misty? Til að svara spurningunum eitt og tvö var stuðist við fullyrðingar úr RSQS mælitækinu sem byggir á þjónustuvakanum (e. SERVQUAL), sem er einna þekktastur í rannsóknum á þjónustugæðum. Notaðar voru 25 fullyrðingarnar út mælitækinu í þjónustukönnun sem send var á viðskiptavini Misty. Fullyrðingarnar eru flokkaðar í fimm víddir; áþreifanleika, áreiðanleika, persónuleg samskipti, lausn vandamála og stefnu. Til að fá betri innsýn inn í hvað þarf að bæta í þjónustunni voru viðskiptavinir spurðir að þeirra mati hvað mætti bæta. Til að svara spurningu þrjú var reiknaður NPS stuðull fyrirtækisins. Niðurstöður leiða í ljós að bæta þarf áþreifanlega þætti innan fyrirtækisins og leggja meiri áherslu á þjálfun starfsmanna. Viðskiptavinir Misty virðast almennt ánægðir og samkvæmt NPS stuðli fyrirtækisins frekar tryggir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Ásmundsdóttir 1989-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Byrnjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/31515