Back to search

Bifröst University

Örskilaboð á íslenskan pappírsfána : upplifun ferðamanna og þátttaka í íslenskum gjörningi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið eftirfarandi rannsóknar er að kanna upplifun erlendra ferðamanna sem hingað koma í þeim tilgangi að sjá hvað þeir skilgreina sem upplifun hér á landi. Skoðað verður hvernig ferðamennirnir tjá upplifun sína með þátttöku í íslenskum gjörningi og hvort draga megi lærdóm af þeirri upplifun. Rannsóknin byggir að nær öllu leyti á gjörningi sem fram fór í Reykjavík árið 2017 og fólst í því að 75 erlendir ferðamenn skráðu upplifun sína á íslenska pappírsfána sem þeir negldu á spýtu og lögðu fram til sýnis. Einnig var stuðst við ljósmyndir og myndbönd sem tekin voru á vettvangi. Sambærilegur gjörningur fór fram fyrir 18 árum og eru niðurstöður hans að hluta til bornar saman við síðari gjörning. Fræðigrunnur rannsóknar byggir m.a. á gerendanetskenningu Latour (e. actor-network theory), og kenningum Edensor og Bærenholdt um sviðsetningu og iðkun í ferðaþjónustu. Aðferðafræðin byggir á skyn- og sjónrænni etnógrafíu (e. sensory and visual ethnography) og kenningu Goffman um sjálfið í félagslegum samskiptum (e. theory of self presentation). Sérstaklega verður horft til þeirra breytinga sem orðið hafa í ferðaþjónustu síðustu tvo áratugina og tengjast þátttöku ferðamanna, upplifun þeirra og sköpun. Niðurstöður benda til þess að ferðamenn sem hingað koma tjái upplifun sína af landinu á afar fjölbreyttan hátt. Margt gefur til kynna að þeir sækist eftir persónulegum tengslum við heimamenn og að vera þátttakendur í sköpun eigin áfangastaða. Niðurstöður gefa vísbendingar um áhuga og væntingar ferðamanna sem hugsanlega gagnast þeim sem áhuga hafa á að efla hér skapandi ferðaþjónustu. Lykilorð: Menningarstjórnun, hreyfanleiki, skapandi ferðaþjónusta, sviðsetning ferðaþjónustu, listgjörningur, upplifun, gerendanetskenning.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Jóhanna Jóhannesdóttir 1968-
Advisor dc:description.advisor
  • Katrín Anna Lund 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/31601

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Jóhanna Jóhannesdóttir 1968-. Örskilaboð á íslenskan pappírsfána : upplifun ferðamanna og þátttaka í íslenskum gjörningi. 2018. https://hdl.handle.net/1946/31601