Back to search

Bifröst University

Knattspyrnukortið

Abstract

dc:description.abstract

Íslensk knattspyrnufélög bjóða áhorfendum sínum að kaupa einföld árskort á leiki liða sinna í dag. Með hvatakerfi og auknu virði á ársmiðum er hægt að réttlæta hærra verð á nýjum árskortum sem gefin eru út af miðlægum þjónustuaðila sem þjónustar öll knattspyrnufélögin. Takmarkið er jú alltaf að gera vöruna eftirsóknaverða í huga neytenda. Samkeppni knattspyrnuleikja er við ýmsar aðrar afþreyingar í landinu og því er nauðsynlegt að vera með rétta staðfærslu á markaði. Að bjóða uppá rafræn kort sem veita aðgang að öllum leikjum þess félags sem áhangandi fylgir, á lægra verði heldur en ef keyptir yrðu stakir miðar á alla leiki, ætti að vera góður hvati fyrir viðskiptavininn að kaupa slíkt kort. Áhorf á leiki í Íslandsmeistarmótinu í knattspyrnu hefur dregist saman undanfarin ár og meðaltalsáhorf á Íslandi breytist nokkuð á árunum 1999-2016. Árið 2007 er meðaláhorf langhæst á tímabilinu, en þá komu 1329 manns að meðaltali á leiki. Frá þeim tíma hefur áhorf farið minnkandi með áberandi dýfu árin 2014 og 2016. Í niðurstöðum rannsóknarinnar má sjá að aukning er á áhorf á útileiki hjá stuðningsmönnum árið 2018 miðað við árið 2017. Það er klár vísbending um að þeir vilji fara á leiki síns liðs þótt þeir séu að leika á útivelli. Niðurstaða þessarar rannsóknar gefur ágætis vísbendingu um það að með virðisaukandi aðgerðum væri hægt að fjölga áhorfendum á knattspyrnuleiki enn frekar. Útgáfa rafrænna aðgangskorta ein og sér myndu ekki hafa sömu áhrif. Hvatning frá félagsliði í gegnum samræmdar vefsíður og bein markaðsetning er ákjósanleg leið til þess að auka áhorf á leiki í Íslandsmeistaramóti í knattspyrnu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásbjörn Þór Ásbjörnsson 1970-
Advisor dc:description.advisor
  • Ingólfur Arnarson 1956-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/32408

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásbjörn Þór Ásbjörnsson 1970-. Knattspyrnukortið. 2019. https://hdl.handle.net/1946/32408