Bifröst University
Fjárfest í framtíðinni : eru íslensk vörumerki að auglýsa á árangursríkan hátt til lengri tíma litið?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni var sjónum beint að skilaboðum auglýsinga íslenskra fyrirtækja. Rannsakað var hvort íslensk fyrirtæki séu að auglýsa með árangursríkum hætti, til lengri tíma litið með hliðsjón af vörumerkjavirði. Rannsóknin skilgreinist sem blönduð, þar sem um ræðir hvort tveggja megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Spurningakönnun var lögð fyrir almennan neytanda ásamt því að tekin voru viðtöl við sérfræðinga á fræðasviðinu og starfandi markaðsstjóra stórra íslenskra fyrirtækja. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara og var sem leiðarljós við alla framkvæmd rannsóknarinnar er: Eru íslensk vörumerki að auglýsa á árangursríkan hátt til lengri tíma litið? Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur til viðeigandi fræðagrunns þar sem finna má umfjöllun um vörumerki, vörumerkjavirði og víddir. Einnig er farið yfir helstu áherslur í markaðssamskiptum og greint frá tilgangi auglýsinga. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu og voru niðurstöður þeirra undirstaða spurningakönnunar í megindlega rannsóknarhlutanum. Helstu niðurstöður eru þær að mun fleiri en færri íslensk fyrirtæki leggja of mikla áherslu á daginn í dag og beita þar með í of miklum mæli söluhvetjandi skilaboðum, í formi afslátta og tilboða til þess að auka sölu þá og þegar. Ofnotkun slíkra söluhvata hefur neikvæðar afleiðingar þar sem neytendur leggja minna virði til vörumerkisins þar sem þeir eru síður reiðubúnir að greiða fullt verð fyrir vörurnar. Langtímaskilaboð; aukin vitund um vörumerkið, áminning og uppbygging ímyndar, spila lykilþátt í árangri til lengri tíma, ásamt því að framkvæma eigin rannsóknir á markaðnum til þess að uppfylla þær þarfir sem þar eru, gera með þeim hætti skammtímaskilaboð markvissari í leitni sinni við að mæta kröfum og óskum á markaðnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/32447