Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Í þessu verkefni var sjónum beint að viðfangsefni sem tengist stjórnun viðskiptatengsla (CRM). Hugmyndafræði CRM var skoðuð frá öðru sjónarhorni en þekkst hefur, þar sem upplýsingum var safnað frá starfsmönnum fjarskiptafyrirtækisins Símans en ekki viðskiptavinum fyrirtækisins. Hugmyndin er að Síminn geti notað upplýsingar frá starfsmönnum sínum sem byggist á tengslaneti þeirra til að nálgast eftirsótta viðskiptavini. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við 30 starfsmenn Símans. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara er: Vilja starfsmenn Símans opna á tengslanet sitt fyrir Símanum? Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar byggist á rannsóknum um félagsleg tengslanet og einnig fræðiritum á sviði markaðsfræði og CRM. Spurningalisti fyrir viðtöl var hannaður út frá þessum fræðilega grunni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að þeir þátttakendur sem stunda mörg mismunandi félagsstörf eru mun líklegri til að opna á tengslanet sitt fyrir Símanum. Komu fram tvær megin ástæður þess að þátttakendur myndu ekki opna á tengslanet sitt. Sumir þátttakendur lýsa sér sem ,ekki sölumanneskju‘ og vilja halda vinnu og einkalífi aðskildu. Aðrir þátttakendur hafa lent í vandamálum þegar þeir hafa komið með vini, fjölskyldu eða ættingja yfir til Símans og vegna þessara slæmu reynslna eru þeir óviljugir að lenda í slíku aftur. Síminn getur fengið aðgang að tengslaneti stærsta hluta starfsmanna ef vandað er til verka. Ekki er hægt að búast við að félagslega óvirkir starfsmenn séu viljugir að opna á tengslanet sitt og verður að huga vel að innri markaðssetningu og innleiðingu stefnunnar til að ekki skapist mikil mótstaða við innleiðingu stefnunnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórey Guðný Sigfúsdóttir 1981-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/32449