Back to search

Bifröst University

"Að fylgjast með veitingastaðnum eins og barninu sínu"

Abstract

dc:description.abstract

Að reka veitingastað getur verið mjög krefjandi og jafnramt spennandi starf. Vert er að rannsaka hvaða aðferðir veitingastaðir nota til að koma sér á framfæri og beita til að ná farsælum rekstri í því ríka samkeppnisumhverfi sem fylgir atvinnugreininni. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvaða markaðstæki og nálganir í almannatengslum þarf til að reka veitingastað. Lítið er til um rannsóknir hér á landi sem hafa rannsakað nákvæmlega hvaða markaðstæki og nálganir í almannatengslum þurfi til að reka veitingastaði farsællega. Höfundi þótti rík ástæða og tilvalið að taka þessa nálgun á viðfangsefninu fyrir í ritgerð sinni. Víðsvegar um heim allann er til fræðilegt efni, mikil þekking og rannsóknir sem gerðar hafa verið á viðfangsefninu. Hálfopin eigindleg viðtöl voru tekin við þrjá eigendur veitingastaða á Íslandi. Aðferðin sem notuð var við úrvinnslu gagna var þemagreining. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þessar helstar: Stafræn markaðssetning og þá allra helst Facebook er aðalburðarásinn í markaðssetningu veitingastaða. Viðhald á persónueinkennum og ferskleika veitingastaða skiptir höfuðmáli og word-of-mouth eða „orð-af-munni“ aðferðin er ennþá, eitt beittasta vopnið í markaðsnálgun veitingastaða. Veitingastaðir virðast blanda ómeðvitað almannatengslum saman við markaðssetningu og mynda þannig tvíeggja sverð í kynningarherferðum sínum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Adam Óttarsson 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Jón Snorri Snorrason 1955-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/32476

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Adam Óttarsson 1988-. "Að fylgjast með veitingastaðnum eins og barninu sínu". 2019. https://hdl.handle.net/1946/32476