Back to search

Bifröst University

Áhrif skoðanaleiðtoga á íslenska tölvuleikjamarkaðinn

Abstract

dc:description.abstract

Umhverfi tölvuleikja og tölvuleikjafyrirtækja er að breytast hratt í dag með hröðum tækninýjungum, fleiri neytendum og nýju umhverfi skoðanaleiðtoga til þess að koma fram hugmyndum sínum og skoðunum á leikjum. Í þessu verkefni verður fjallað um áhrif skoðanaleiðtoga á sölu og dreifingu tölvuleikja. Notast verður við tvær kenningar í ritgerðinni til þess að komast að því hvernig upplýsingar berast til fólks. Útbreiðsla nýjunga (e. Diffusion of innovations) verður notuð til þess að hjálpa okkur að skilja hvernig nýir leikir eru samþykktir af spilurum og hvernig sé best að koma skilaboðum og útbreiðslu þeirra af stað. Tveggja þrepa kenningin (e. Two-step flow of communications) verður notuð til þess að kanna hvort skoðanaleiðtogar séu undir áhrifum frá stórum fjölmiðlum, hvort upplýsingar um leiki fari fyrst frá fjölmiðlum sem skoðanaleiðtogar tileinki sér og komi því áleiðis til venjulega neytandans. Einnig verða störf almannatengla á tölvuleikjamarkaðnum skoðuð og áskoranir þeirra. Eru störf þeirra orðin nauðsynleg fyrir tölvuleikjafyrirtækin með komandi breytingum á markaðnum og með skoðanaleiðtogum. Niðurstöður úr spurningakönnun og viðtölum sýna að fólk sækir sér upplýsingar um leiki hjá skoðanaleiðtogum áður en þeir eru keyptir og eru þeir skoðanamyndandi fyrir þau og telja viðmælendur að fyrirtæki í dag þurfi að nýta sér skoðanaleiðtoga til þess að markaðssetja leiki. Einnig telja þeir að almannatenglar séu orðnir mjög mikilvægir þar sem að þeir þurfa að halda góðu sambandi við skoðanaleiðtoga og spilendur til þess að halda ímynd fyrirtækisins góðri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haraldur Gunnarsson 1994-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðbjörg Hildur Kolbeinsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/32481

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haraldur Gunnarsson 1994-. Áhrif skoðanaleiðtoga á íslenska tölvuleikjamarkaðinn. 2019. https://hdl.handle.net/1946/32481