Back to search

Bifröst University

Áhugaleikfélög á Íslandi : afhverju starfar þú með leikfélagi og hvaða þættir í starfsemi þess skipta mestu máli?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að komast að því afhverju fólk starfar með leikfélagi og hvaða þættir í starfi áhugaleikfélaga skipta máli. Af hverju kemur fólk saman eftir vinnu til að vinna að stóru verkefni í nokkrar vikur án þess að fá neitt í vasann fyrir það að jafnaði. Sjónum var beint að meðlimum áhugaleikfélaga sama hvaða hlutverki einstaklingurinn gegndi í sínu leikfélagi. Viðtal var tekið við þrjá einstaklinga sem buðu sig fram til að fara í viðtal útaf verkefninu og út frá þeim var gerð spurningakönnun sem send var út í lokaða hópa áhugaleikfélaga. Viðtölin fóru fram í enda febrúar og byrjun mars 2016 en spurningakönnunin var send út í október 2017. Notast var við blandaða rannsóknaraðferð og greiningu niðurstaðna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þátttakendur höfðu persónulegan ávinning af leiklistinni. Viðmælendur voru almennt sammála um hvað félagslegi þátturinn var mikilvægur og hversu jákvæð áhrif leiklistin hefði á þau og aðra í kringum þau, spurningakönnunin samsvaraði sér við viðtölin. Helsta gagnrýnin sem kom fram voru streituvaldar eins og húsnæðismál, samningaviðræður við staðarhaldara eða sveitarfélög og álag á fjölskyldur á æfingatímabilum og þá sérstaklega ef fjölskyldan var ekki þátttakandi í leikfélaginu eða leiklist. Niðurstöðurnar vekja margar áhugaverðar spurningar sem vert er að skoða með áframhaldandi rannsókn sem getur vonandi aðstoðað áhugaleikfélög í framtíðinni til að sanna gildi sitt í samfélaginu. Lykilorð: Leiklist, drífandi, leikfélag, áhugi, skemmtun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 1983-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigrún Lilja Einarsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/32495

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 1983-. Áhugaleikfélög á Íslandi : afhverju starfar þú með leikfélagi og hvaða þættir í starfsemi þess skipta mestu máli?. 2019. https://hdl.handle.net/1946/32495