Bifröst University
Fasteignir í virðisaukaskatti : skylda til leiðréttingar innskatts
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessari er ætlað að fjallar á heildstæðan hátt um helstu lög og reglur sem varða fasteignir í virðisaukaskatti. Fasteignir falla almennt fyrir utan skattskyldusvið virðisaukaskattslaga nr. 50/1988. Í 1. mgr. 6. gr. laganna er að finna heimild ráðherra til að setja reglur um að fyrirtæki sem selja óskattskylda þjónustu geti farið fram á svokallaða frjálsa skráningu í grunnskrá virðisaukaskatts. Í 4. mgr. 6. gr. laga nr. 50/1988 er kveðið á um heimild þeirra sem stunda byggingarstarfsemi á eigin kostnað, í þeim tilgangi að selja fasteignir virðisaukaskattsskráðum aðilum, til að sækja um svokallaða sérstaka skráningu í grunnskrá virðisaukaskatts. Ráðherra hefur sett nánari reglur um frjálsa og sérstaka skráningu með reglugerð nr. 577/1989. Hljóti fyrirtæki heimild til sérstakrar eða frjálsrar skráningar öðlast það rétt til innskattsfrádráttar. Sá réttur er bundinn því skilyrði að fasteignin verði notuð í virðisaukaskattsskyldri starfsemi um ákveðinn tíma. Breytist forsendur fyrir innskattsfrádrætti aðila þá ber honum að leiðrétta (bakfæra) fenginn innskatt, þ.e. leiðrétta virðisaukaskattskvöðina. Reglugerðir sem fjalla um fasteignir í virðisaukaskatti eru rýrar að efninu til og óljósar um t.d. hvað teljist til breyttra forsendna, hvaða innskattur myndi virðisaukaskattskvöð, skilyrði frjálsrar og sérstakrar skráningar o.fl. Ritgerðin varpar ljósi á þá galla sem til staðar eru í núgildandi reglugerðum sem fjalla um fasteignir í virðisaukaskatti. Leitast er eftir að greina niðurstöður yfirskattanefndar um ýmis álitamál sem upp hafa komið og sjá hvort skattframkvæmd samrýmist markmiðum virðisaukaskattslaga. Í niðurstöðum ritgerðarinnar má finna samantekt á gildandi reglum um meðferð fasteigna í virðisaukaskatti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hannes Örn Ívarsson 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Soffía Eydís Björgvinsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/32496