Bifröst University
Panóramaheimildin í 16. gr. höfundalaga nr. 73 frá 1972 og h - lið 3.mgr. 5. gr. tilskipunar 2001/29/EB
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Ritgerð þessi er á sviði höfundaréttar og fjallar að meginefni um 16. gr. höfundalaga svo og h-lið 3. mgr. 5. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2001/29/EB frá 22. maí 2001. Ákvæði 16. gr. höfundalaga, nr. 73/1972, tekur til þeirrar heimildar að taka og birta myndir af byggingum svo og listaverkum sem staðsett hafa verið varanlega utanhúss á almannafæri án sérstaks samþykkis listamannsins eða arkitektsins. Sé mynd sem gerð er af verki eða byggingu aðalatriði myndar og hún hagnýtt til markaðssölu á höfundur rétt til þóknunar, nema um blaðamyndir eða sjónvarpsmyndir sé að ræða. Lagagreinin er í II. kafla höfundalaga sem nefnist Takmarkanir á höfundarétti og umsýsla höfundaréttar á grundvelli samningskvaða en þar er að finna undantekningar á einkarétti höfundar til eintakagerðar og birtingar. Miklar og örar tækniframfarir hafa átt sér stað síðan ákvæði 16. gr. höfundalaga var lögfest. Vegur hér þyngst tilkoma internetsins og stafræn miðlun upplýsinga. Í Evrópu hefur átt sér stað mikil umræða um gildi undantekninga frá einkarétti höfunda og stöðu höfundaverka sem staðsett eru varanlega í almannarými, svo og heimildir til að taka og birta myndir af slíkum verkum án samþykkis höfundar líkt og 16. gr. höfundalaga tekur til svo og h-liður 3. mgr. tilskipunar 2001/29/EB. Ekki hefur áður í íslenskum greinum, ritgerðum né fræðibókum á svið lögfræði verið fjallað ítarlega um réttarfyrirbærið og ekki er að finna sérstakt íslenskt hugtak yfir það. Höfundi ritgerðar þessarar var nokkur vandi á höndum þegar kom að íslenskun hugtaksins en að athuguðu máli þótti höfundi hugtakið panóramaheimildin viðeigandi. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir efnisþáttum 16. gr. höfundalaga og ákvæðið borið saman við viðlíka ákvæði í erlendum rétti. Í inngangskafla ritgerðarinnar er varpað fram þremur rannsóknarspurningum. Í fyrsta lagi, hvort 16. gr. höfundalaga hafi staðist tímans tönn með tilliti til örrar tækniþróunar og breytinga á evrópsku og alþjóðlegu lagaumhverfi. Í öðru lagi, hvort breytinga sé þörf á ákvæðinu. Í þriðja lagi, hvort þörf sé á samræmdari reglum á innri markaði Evrópusambandsins hvað varðar panóramaheimildina í h-lið 3. mgr. 5. gr. InfoSoctilskipunarinnar. Að mati höfundar hefur 16. gr. höfundalaga staðist efnislega tímans tönn að mestu leyti þó orðfæri hennar sé nokkuð fornfálegt. Þörf er á breytingum á ákvæðinu bæði til þess að færa orðalagið nær nútímanum svo og að skerpa á eiginlegu efnisinntaki þess. Ákvæðið er aukinheldur í fullu samræmi við alþjóðasamninga og skuldbindingar sem Ísland er aðili að. Vegna ólíks regluverks er lýtur að panóramaheimildinni í Evrópu hefur tilgangi InfoSoctilskipunarinnar ekki verið náð og má segja að ósamræmt regluverk vinni gegn tilgangi tilskipunarinnar. Vegna þessa ástands er það niðurstaða höfundar að samræma þurfi regluverk ríkjanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Einar Örn Gunnarsson 1961-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Rán Tryggvadóttir 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/32497