Back to search

Bifröst University

Hvernig má auka skilvirkni kjarasamningagerðar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að kanna með hvaða hætti bæta megi kjarasamningaferlið hér á landi og gera það skilvirkara með hliðsjón af kjarasamningagerð á Norðurlöndum. Ferli kjarasamningagerðar á Íslandi var skoðað, það er gildissvið, undirbúningur og atkvæðagreiðsla samninga. Efni og innihald kjarasamninga var skoðað sem og lagarammi þeirra auk þess sem fjallað var um aðila vinnumarkaðarins og hlutverk ríkissáttasemjara. Tekin voru þrjú lönd til samanburðar, það er Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Vinnumarkaðurinn í þeim löndum var skoðaður auk þess sem farið var yfir ferli kjarasamningagerðar í hverju landi. Til að gera samanburðinn sem skýrastan þá voru teknar fyrir sömu breytur og skoðaðar voru fyrir Ísland, þ.e. efni og innihald kjarasamninga, lagarammi þeirra, undirbúningur og atkvæðagreiðsla samninga auk þess sem fjallað var um aðila vinnumarkaðarins og hlutverk ríkissáttasemjara. Niðurstöður höfundar eru að bæta megi gerð kjarasamninga með því að lögfesta störf Samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga auk þess sem skerpa megi á og dýpka 23. gr. vinnulöggjafarinnar svo hún kveði með ítarlegri hætti um undirbúning kjarasamninga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjörtur Ingi Hjartarson 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/32498

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjörtur Ingi Hjartarson 1980-. Hvernig má auka skilvirkni kjarasamningagerðar. 2019. https://hdl.handle.net/1946/32498